Viðskipti
181 182 183 184 185 186 187 188 189 … 223 ›
Stofnfé sé eign allra Hafnfirðinga Þótt ekki sé verið að stela frá neinum, er þetta siðlaust og ætti ekki að líðast. Þetta segir Helgi í Góu, einn stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar, um þá sem hafa selt hluti sína í sjóðnum. Hann segir stofnféð vera eign allra Hafnfirðinga. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:25
Spáir verðbólguhækkun upp á 1% Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga hækki um heilt prósentustig í næsta mánuði, fari úr 2,8 prósentum í 3,8 prósent. Ástæðurnar eru einkum hærra eldsneytisverð, matvöruverð og húsnæðisverð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Deilurnar lagðar til hliðar "Við erum ágætlega sáttir við þessa niðurstöðu. Menn töluðu í þá átt að vinna saman og halda áfram á uppbyggingarbraut," segir Valgeir Bjarnason, sem í gær var kosinn í stjórn Sparisjóðs Skagfirðinga á aðalfundi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Mikil spurn eftir Actavisbréfum Mikil eftirspurn var eftir bréfum sem í boði voru til kaups í forgangsréttarútboði Actavis Group sem lauk í gær. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Bankarán um glaðbjartan dag Það er verið að fremja bankarán í Hafnarfirði um glaðbjartan dag. Þetta segir Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri, vegna tilboðs sem stofnfjáreigendur Sparisjóðs Hafnarfjarðar hafa fengið frá óþekktum aðila um að selja hvern hlut á tæpar fimmtíu milljónir króna. Engar upplýsingar berast frá nýrri stjórn sparisjóðsins um hvað sé að gerast. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Skylt að gefa upplýsingar Staðfest var með tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær að Serafin Shipping eignaðist tæp sex prósent í Icelandic Group við sameiningu SH og Sjóvíkur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Ekki nóg tengsl Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, segir að niðurstaða Ríkisendurskoðunar um fjárlög 2004 veki upp spurningar um tengsl valds og ábyrgðar hjá forstöðumönnum ríkisstofnana. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Tilkynning frá Icelandic Group Vegna umfjöllunar fjölmiðla að undanförnu um hluthafa í Icelandic Group hf. vill félagið koma því á framfæri að við samruna Icelandic Group og Sjóvíkur ehf., sem samþykktur var þann 30. maí sl., hafi Serafin Shipping Corp. eignast 5,96% hlut í Icelandic Group í skiptum fyrir hluti sína í Sjóvík. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Íbúðaverð hækkaði um 4% Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tæp fjögur prósent í maí frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að íbúðamarkaðurinn einkennist því enn af mikilli eftirspurn og verðþrýstingi þótt dregið hafi úr hækkun íbúðaverðs frá fyrstu mánuðum ársins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Yfirtaka á sparisjóði Flókið að ráða yfir sparisjóð. Stofnun eignarhaldsfélaga gæti verið lausnin. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Eignarhald enn óljóst "Ég eða félög mér tengd eigum ekkert í Serafin Shipping og höfum aldrei átt," segir Jón Kristjánsson, stjórnarformaður Icelandic Group, spurður um hver ætti félagið. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, vísaði á Jón þegar hann var spurður í fyrradag hvort hann ætti eða hefði átt Serafin Shipping. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Gengu úr stjórn Árvakurs Haraldur Sveinsson, sem ýmist hefur verið stjórnarformaður eða framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og jafnframt stór hluthafi, gekk úr stjórn félagsins á aðalfundi þess í gær. Það gerði Friðþjófur Johnson, fulltrúi hlutafjár Johnson ehf. í Árvakri, einnig. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Launavísitalan hækkaði um 0,6% Launavísitalan í maí mældist tæplega 266 stig og er það hækkun um 0,6 prósent frá því í apríl. Síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um 6,6 prósent en ef litið er aðeins til sex mánaða hefur hún hækkað um 9,8 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Stefnir í samkomulag Aðalfundur Sparisjóðs Skagfirðinga, áður Sparisjóður Hólahrepps, verður haldinn klukkan hálftvö í dag. Miklar deilur hafa staðið milli tveggja stofnfjáreigendahópa sem buðu fram sitt hvorn listann á aðalfundi í nóvember síðastliðnum, en mögulegt er að sættir náist á fundinum í dag. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Mosaic Fashions inn í Kauphöll Mosaic Fashions varð í dag fyrsta breska félagið sem skráð er á aðallista Kauphallar Íslands. Útgefið hlutafé félagsins er tæpir þrír milljarðar króna að nafnverði. Forstjóri Kauphallarinnar segir þetta kannski ryðja brautina fyrir fleiri erlend félög. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Boðið í stofnfé í SPH Einhverjir stofnfjáreigendur sem ekki studdu núverandi stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar hafa fengið tilboð í stofnfjárbréf sín. Talið er að núverandi stjórn sé að tryggja það að gamla stjórnin muni ekki ná völdum á ný. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Byggingarvísitala hækkar um 0,03% Vísitala byggingarkostnaðar í þessum mánuði er 0,03 prósentum hærri en í síðsta mánuði samkvæmt Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að vísitalan hefur síðustu tólf mánuði hækkað um 4,2 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Vill ekkert staðfesta um Europris "Það getur vel verið að það verði eigendaskipti í Europris en ég ætla ekki að staðfesta neitt að svo stöddu," segir Matthías Sigurðsson, meirihlutaeigandi Europris-verslananna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Ekki hætt við að reisa bensínstöð Atlantsolía ætlar ekki að hætta við bensínstöð við Dalveg í Kópavogi þrátt fyrir að Skeljungur hafi breytt stöð sinni á lóð við hliðina í Orkustöð. Skeljungur hótaði Kópavogsbæ að skaðabóta yrði krafist fengi Atlantsolía lóðina. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Avion Group kaupir RGH Avion Group hefur fest kaup á The Really Great Holliday Company (RGH) sem á og rekur ferðaskrifstofurnar Travel City Direct, Transatlantic Vacations og Carshop. Travel City Direct er þekkt ferðafyrirtæki og býður einkum ferðalög frá Bretlandi til Florída. Eftir kaupin verða Really Great Holliday og systurfélag þess, Excel Airways, til samans áttunda stærsta félagið á Bretlandseyjum í afþreyingarferðum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Olíuverð hækkar áfram Olíuverð hefur hækkað um 36 prósent frá því í janúar, þar af um níu prósent síðastliðna viku. Í morgun fór verð á tunnu af hráolíu yfir 59 dollara og fátt bendir til að það lækki í bráð. Þær skýringar sem gefnar hafa verið á þessum gríðarlegu hækkunum eru meðal annars að framboð sé meira en eftirspurn og þá hefur ástandið í alþjóðamálum áhrif á markaðinn. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:23
Breytinga að vænta hjá Europris "Þessi mál eru enn á huldu en eiga eftir að skýrast á næstu dögum," segir Lárus Guðmundsson, einn eigenda í verslunum Europris, um hvort breytinga sé að vænta á eignarhaldi fyrirtækisins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
1100 milljóna hagnaður Skinney-Þinganes hf. skilaði rúmlega 1100 milljóna króna hagnaði eftir skatta árið 2004, 660 milljónum meira en árið áður. Aðalfundur félagsins, sem hefur verið mjög í fréttum í tengslum við sölu ríkisbankanna vegna eignaraðildar forsætisráðherra, samþykkti í fyrradag að greiða út 10 prósenta arð. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:33
Bogi kaupir Sindra-Stál Stjórn Sindra-Stál hf. hefur samþykkt kauptilboð Boga Þórs Siguroddssonar í allt hlutafé félagsins. Kauptilboðið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Boga í dag. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Rússneska mafían fjármagni útrás? Er það rússneska mafían sem fjármagnar útrás íslenskra kaupahéðna? Því er velt upp í hinu virta, breska dagblaði <em>Guardian</em> í dag. Árangur sumra Íslendinga í samkeppni við mafíuna þykir undraverður. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:22
Íhuga að loka þriðjungi útibúa Til greina hefur komið að loka þriðjungi útibúa Íslandsbanka. Ákveðið hefur verið að leggja niður fjögur útibú hvað sem síðar verður. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Reynt að flytja fólk til í starfi Íslandsbanki lýsir því yfir að fækkun útibúa, sem sagt var frá í hádegisfréttum Bylgjunnar, sé í þágu viðskiptavina sinna. Útibúin þurfi að vera stærri og sjálfstæðari til að mæta kröfum um víðtækari þjónustu og ráðgjöf. Leitast verði við að flytja starfsfólk þeirra útibúa sem lögð verða niður til í starfi innan bankans. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Gengið frá sölu Pennans Gengið hefur verið frá samningum um sölu Pennans hf. til hóps fjárfesta undir forystu Kristins Vilbergssonar. Tekur Kristinn við starfi forstjóra Pennans í dag af Gunnari B. Dungal sem stjórnað hefur fyrirtækinu í 36 ár. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Kaupi hlut í Marks og Spencer Hópur íslenskra fjárfesta er við það að tryggja sér ríflega þriggja prósenta hlut í verslanakeðjunni Marks og Spencer fyrir rúma tuttugu milljarða króna. Þetta kemur fram í breska blaðinu <em>Guardian</em> í morgun. Þar segir að kaupin verði væntanlega tilkynnt á allra næstu dögum en þreifingar hafi staðið yfir í um það bil tíu daga. Ekki er vitað hverjir kaupendurnir eru, en Baugur, Kaupþing og Landsbankinn eru öll nefnd á nafn í grein <em>Guardian</em>. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Staða bankanna sé traust Seðlabankastjóri gefur ekki mikið fyrir niðurstöður norsks prófessors um að íslenska bankakerfið geti hrunið eins og spilaborg. Prófessorinn kannaði stöðu íslenskra banka fyrir norska fjármálaeftirlitið. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22