Viðskipti
169 170 171 172 173 174 175 176 177 … 223 ›
Hagnaður hjá Kögun Hagnaður Kögunar eftir skatta nam 434 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er aukning um 91% frá sama tímabili 2004. Kögun samanstendur af Verk- og kerfisfræðistofunni hf., Kögurnesi ehf., Ax hugbúnaðarhúsi hf., Huga hf., Landsteinum Streng hf., Skýrr hf., Teymi hf. og Opnum kerfum Group Holding ehf. Innlent 16.11.2005 10:19
Úrvalsvísitalan heldur áfram að hækka Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og fór yfir 4,800 stig, sem er enn eitt metið. Hækkun varð á flestum fyrirtækjum, en þau sem lækkuðu, lækkuðu mjög lítið. Innlent 16.11.2005 07:44
Landsbankinn kaupir írskt verðbréfafyrirtæki Landsbanki Íslands herjar nú á Írland en bankinn keypti í morgun írska verðbréfafyrirtækið Merrion fyrir fjóra milljarða króna. Sjötíu og fimm manns vinna hjá fyrirtækinu og þeir verða fljótlega hluti af 1700 manna starfsliði Landsbankans. Fyrirtækið veltir hátt í 2 milljörðum króna á ári og hefur árlega skilað hálfum milljarði í hagnað frá því það var stofnað fyrir sex árum. Innlent 15.11.2005 18:44
Úrvalsvísitalan aldrei mælst hærri Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni varð hærri í gær en nokkru sinni fyrr og var 4,753 stig við lokun markaðarins. Hún hefur hækkað um rösklega 41 prósent frá áramótum. Haldist þessi hækkun verður þetta fjórða árið í röð sem úrvalsvísitalan hækkar um yfir 40 prósent, en úrvalsvísitalan endurspeglar gengi 15 stærstu hlutafélaganna í kauphöllinni. Innlent 15.11.2005 12:36
Vísitalan aldrei verið hærri Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands sló enn eitt metið í gær. Vísitalan endaði í 4.753 stigum, en fyrra met vísitölunnar var 4.748 stig. Vísitalan er samsett úr gengi fimmtán stærstu og veltumestu hlutafélaganna í Kauphöllinni. Viðskipti innlent 14.11.2005 22:15
Í takt við spár markaðarins Actavis hagnaðist um 1,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, eða um 23,2 milljónir evra, sem er yfir sextíu prósentum meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2005 22:15
Þriðji ársfjórðungur sá besti í sögu Actavis Hagnaður lyfjafyrirtækisins Actavis nam 1,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi og er sá besti í sögu fyrirtækisins eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá því. Hagnaðurinn jókst um nær tvo þriðju miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður félagsins fyrstu níu mánuði ársins, fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta, nam rúmum 6,9 milljörðum króna miðað við 6,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2005 21:26
Landsbankinn kaupir evrópskt verðbréfafyrirtæki Landsbankinn hefur fengið leyfi til að kaupa evrópska verðbréfafyrirtækið Kepler Equities, en það hét áður Julius Bår Brokerage. Landsbankinn gerði tilboð í fyrirtækið í semptember og voru kaupin háð skilyrðum um samþykki eftirlitsaðila í Frakklandi, Sviss og á Íslandi. Innlent 14.11.2005 17:03
Baugur kaupir skartgripaverslanir Baugur Group er að ganga frá kaupum á breskri verslunarkeðju sem rekur á fjórða tug skartgripaverslana undir nafninu Mappin & Webb og Watches of Switzerland. Innlent 13.11.2005 12:24
Landsbanki hækkar vexti á íbúðalánum Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir þá ákvörðun Landsbankans að hækka vexti íbúðalána skynsamlega. Bankinn hækkar vexti sína í 4,45 prósent úr 4,15 prósentum. Hækkunin hefur ekki áhrif á eldri lán en hækkar greiðslur nýrra lána. Viðskipti innlent 11.11.2005 23:17
Vaxtahækkanir að skila sér Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir að lækkun verðbólgunnar hafi engin áhrif á ákvörðun bankans um hækkun stýrivaxta sem búist er við í byrjun desember. Viðskipti innlent 11.11.2005 23:16
Krónan styrkist aftur vegna skuldabréfaútgáfu Krónan styrktist á ný í gær,eftir að hafa lækkað nokkra daga í röð. Ástæðan er sú að þýski ríkisbankinn gaf út skuldabréf í íslenskum krónum upp á þrjá milljarða króna, en hlé hefur verið á slíkri útgáfu frá upphafi mánaðarins. Þessi útgáfa, sem hófst fyrir nokkrum vikum, er komin upp í 114 milljarða króna. Hækkunin á krónunni í gær nam 0,5 prósentum. Innlent 11.11.2005 09:03
Mikill áhugi á bréfum FL Group Fagfjárfestar sýndu nýju hlutafé í FL Group mikinn áhuga. Allir helstu lífeyrissjóðir og fjárfestingasjóðir tóku þátt í útboðinu og skráðu sig alls fyrir 33,6 milljörðum króna. Hannes Smárason segir þetta mikla traustsyfirlýsingu til handa stjórnendum félagsins, en eftir útboðið verður eigið fé FL Group 66 milljarðar króna sem geri það að stærsta fjárfestingarfélagi landsins. Viðskipti innlent 10.11.2005 23:49
Skuldabréf gefin út fyrir þrjá milljarða í dag Þýskur banki gaf í dag út skuldabréf upp á þrjá milljaðra íslenskra króna. Bréfin eru gefin út til tæplega tveggja ára eða fram í september árið 2007. Innlent 10.11.2005 17:58
Gengisvísitala veiktist um eitt prósent í gær Gengisvísitala krónunnar veiktist um eitt prósent í gær og fór í 102,8 stig. Eiríkur Guðnason, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir að lækkunin eigi ekki að koma neinum á óvart. Um litla breytingu sé að ræða en krónan hafi verið mjög sterk undanfarið. Innlent 10.11.2005 07:26
Átta fyrirtæki hækka umfram Úrvalsvísitölu Það sem af er fjórða ársfjórðungi hefur Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkað um eitt prósent. Átta félög hafa hækkað umfram vísitöluna og hefur Össur leitt hækkunina með tæplega sextán prósenta hækkun. Þetta kemur fram í Greiningu Íslandsbanka. Innlent 9.11.2005 13:56
Þrjátíu innherjamál skoðuð Tólf fyrirtæki voru beitt fjársektum af Fjármálaeftirlitinu á síðasta starfstímabili vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Alls voru 30 mál rannsökuð sem vörðuðu ákvæði um rannsóknar- og tilkynningarskyldu innherja fyrirtækja og skil á innherjalistum. Viðskipti innlent 7.11.2005 22:19
Þrjú fyrirtæki Atorku sameinast Um næstu áramót munu þrjú fyrirtæki Atorku Group sameinast, en það eru fyrirtækin Austurbakki, Icepharma og Ismed, sem öll starfa á sviði heilbrigðismála og verður nýtt nafn fyrirtækisins Icepharma hf. Velta nýja félagsins er áætluð um 4 milljarðar króna. Forstjóri þess verður Margrét Guðmundsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri Austurbakka hf. Atorka Group hefur á undanförnum árum fjárfest í fyrirtækjum á sviði heilbrigðismála. Innlent 8.11.2005 14:10
Tekur við starfi aðstoðarorkumálastjóra Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir hefur verið ráðin til að gegna nýju starfi aðstoðarorkumálastjóra. Hún hóf störf í dag. Innlent 7.11.2005 20:50
Skuldabréfaútgáfa rúmir 111 milljarðar Engir erlendir aðilar hafa gefið út skuldabréf í íslenskum krónum síðan fyrir viku, samkvæmt upplýsingum frá greiningardeild Íslandsbanka. En þá gaf Kommunalbanken í Noregi út út þriggja milljarðar skuldabréf til fimm ára. Innlent 7.11.2005 16:11
Fasteignaverð hækkaði mest í Garðabæ Fasteignaverð í Garðabæ hækkaði um fimmtán prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs, meira en nokkurs staðar annar staðar á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Innlent 7.11.2005 08:44
700 nýjar íbúðir Um 700 íbúðir munu rísa frá slippasvæðinu við Mýrargötuna í vestri til nýs tónlistar- og ráðstefnuhúss í austri á næstu fimm árum að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns skipulagráðs Reykjavíkurborgar. "Þetta mat byggir á þeim skipulagsáætlunum sem við höfum fyrir okkur; lykilverkefnum sem eru ýmist á lokastigi eða í undirbúningi." Viðskipti innlent 6.11.2005 21:06
KR-áskorun tekin af heimasíðunni Áskorun á heimasíðu KR, þar sem formaðurinn Guðjón Guðmundsson, hvetur KR-inga til að greiða Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa og Benedikt Geirssyni starfsmanni ÍSÍ atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna sem hófst í dag, hefur verið fjarlægð af heimasíðunni. Innlent 4.11.2005 16:10
Útfæði erlends gjaldeyris frá landinu Talsvert útflæði erlends gjaldeyris var frá landinu í september síðastliðnum. Stafar það aðallega af erlendum verðbréfakaupum innlendra aðila. Einnig má gera ráð fyrir aukinni sölu íslenskra skuldabréfa til erlendra aðila á næstu misserum. Innlent 3.11.2005 22:13
KB banki hækki sjálfur vexti Búast má við að vextir á íbúðalánum Íbúðalánasjóðs hækki í árslok. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Íbúðalánasjóði, segir samt nær fyrir KB banka að hækka vexti á sínum lánum. Þenslan sé jú sprottin upp úr óheftum lánum bankanna. Innlent 3.11.2005 21:54
Bóksalinn í Kabúl óskar eftir hæli í Noregi Bóksalinn í Kabúl, Shah Mohammad Rais, hefur óskað eftir pólitísku hæli í Noregi en norsk stjórnvöld eru treg til að veita honum það. Innlent 3.11.2005 18:10
Litlu sparisjóðirnir þoli varla hærri bindiskyldu Litlu sparisjóðirnir þola varla hærri bindiskyldu, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann undrast málfluting þeirra sem vilja snúa til fyrri hátta, enda notar enginn seðlabanki í þróuðu ríki, bindiskyldu í baráttunni við verðbólgu. Innlent 3.11.2005 18:27
Söluaukning um 13,3 prósent Sala Marels fyrstu níu mánuði þessa árs nam 94,3 milljónum evra, eða jafnvirði 7,5 milljarða íslenskra króna. Þetta er um 13,3 prósenta aukning frá fyrra ári. Innlent 3.11.2005 17:59
554 milljónir í hagnað 554 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir tekjuskatt fyrstu níu mánuði þessa árs samanborið við 367 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Innlent 3.11.2005 18:02
Betri útkoma hjá ríkissjóði en áætlað var Breyting á handbæru fé frá rekstri ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins er jákvæð um 14,6 milljarða króna á tímabilinu. Innlent 3.11.2005 18:06