Samráð olíufélaga
1 2 3 4 5 … 5 ›
Máli á hendur olíuforstjórum vísað frá héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá máli ákæruvaldsins á hendur þremur fyrrverandi og núverandi forstjórum stóru olíufélaganna þriggja vegna samráðs félaganna. Innlent 9.2.2007 16:09
Munnlegur málflutningur vegna frávísunarkröfu olíuforstjóra Munnlegur málflutningur hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem tekin er fyrir krafa fyrrverandi og núverandi forstjóra stóru olíufélaganna þriggja um frávísun á ákæru á hendur þeim vegna samráðs olíufélaganna. Innlent 26.1.2007 10:05
Von á fjölda mála eftir úrskurð Hæstaréttar í olíumáli Von er á tugum mála á hendur stóru olíufélögunum vegna ólöglegs samráðs þeirra á næstunni eftir að Hæstiréttur komst að því í gær að héraðsdómi bæri að taka til meðferðar kröfu Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, um bætur frá Keri, fyrrverandi eiganda Esso, vegna samráðsins. Innlent 19.1.2007 12:10
Þrautaþrautavarakröfu vegna olíusamráðs vísað aftur til héraðsdóms Hæstiréttur úrskurðaði í dag að héraðsdómi bæri að taka til efnismeðferðar þrautaþrautavarakröfu Sigurðar Hreinssonar á Húsavík á hendur Keri, sem áður hét Esso, vegna ólöglegs samráðs stóru olíufélaganna þriggja. Innlent 18.1.2007 16:51
Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun. Innlent 9.1.2007 12:05
Verjendur olíuforstjóra mótmæltu ákæru í morgun Verjendur olíuforstjóranna þriggja, sem Ríkissaksóknari ákærir fyrir ólöglegt verðsamráð, mótmæltu ákærunni við þingfestingu hennar í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 9.1.2007 09:40
Rætt um hugsanlegar bótakröfur á hendur olíufélögunum Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur vísað tillögu minnihluta bæjarstjórnar um að bæjarfélagið krefji stóru olíufélögin um bætur vegna samsráðs þeirra til bæjarráðs. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns. Innlent 18.12.2006 10:19
Olíusamráðsdómur hafi fordæmisgildi fyrir Vestmannaeyjabæ Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir fyrirliggjandi að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli Reykjavíkurborgar og Strætós á hendur stóru olíufélögunum vegna samráðs þeirra hafi fordæmisgildi fyrir Vestmannaeyjabæ enda séu málin keimlík. Innlent 14.12.2006 13:55
Forstjórar olíufélaganna ákærðir Ákæra hefur verið gefin út á hendur núverandi og fyrrverandi forstjórum stóru olíufélaganna vegna ólöglegs samráðs um olíuverð. Þetta eru þeir Einar Benediktsson, núverandi forstjóri Olís, Geir Magnússon, fyrrverandi forstjóri Essó, og Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs. Brot forstjóranna geta varðað allt að fjögurra ára fangelsi ef sakir eru miklar. Innlent 13.12.2006 16:22
Nærri 78 milljóna króna skaðabætur fyrir samráð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag olíufélögin Ker hf, sem áður var Olíufélagið Esso, OLÍS og Skeljung til að greiða Reykjavíkurborg 72 milljónir króna í bætur vegna samráðs þeirra á níunda áratug síðustu aldar. Þá voru félögin dæmd til að greiða Strætó bs. 5,8 milljónir vegna sömu saka. Innlent 13.12.2006 15:01
Slaka verður á sönnunarkröfum vegna bótakrafna í samráðsmálum Slaka verður á sönnunarkröfum í málum eins og máli Sigurðar Hreinssonar á hendur Keri að mati Neytendasamtakanna, en Ker var í gær sýknað af kröfum Sigurðar vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna samráðs olíufélaganna á árunum 1995-2001. Innlent 7.12.2006 13:33
Ker sýknað af skaðabótakröfu tengdri samráði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Ker af kröfu Sigurðar Hreinssonar frá Húsavík um bætur vegna þess skaða sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna samráðs stóru olíufélaganna. Þetta er fyrsti dómur sem fellur í máli tengdu samráði olíufélaganna. Innlent 6.12.2006 15:22
Dómur fellur í máli tengdu olíusamráði í dag Héraðsdómur Reykjavíkur fellir í dag dóm í fyrsta málinu tengt olíusamráði stóru olíufélaganna. Það er Sigurður Hreinsson á Húsavík sem höfðar málið og fer fram á það að Ker hf., sem er fyrrverandi eigandi Olíufélagsins Esso, greiði sér um 180 þúsund krónur í skaðabætur vegna skaða sem hann hafi orðið fyrir í tengslum við samráð olíufélaganna á níunda áratug síðustu aldar. Innlent 6.12.2006 14:04
Ríkið í mál við olíufélögin Dómsmálaráðuneytið hefur falið Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni að höfða skaðabótamál á hendur stóru olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs á tíunda áratug síðustu aldar. Vilhjálmur sagði í samtali við fréttastofu að krafan varðaði einkum meint samráð vegna útboða á olíuvörum fyrir Landhelgisgæsluna og lögregluembættin í landinu en sagði kröfugerð ekki hafa verið mótaða Innlent 29.11.2006 16:29
Stefna borgarinnar og Strætó tekin fyrir Reykjavíkurborg og Strætó bs. hafa stefnt olíufélögunum vegna samráðs þeirra og krefjast skaðabóta upp á samtals 157 milljóna króna. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem stefnandi og verjandur kröfðust frestunar á málunum tveimur í þrjár vikur sem þeir hyggjast nota til frekari gagnaöflunar. Innlent 28.8.2006 15:03
Vilja aðgerðir vegna olíusamráðs Árni Mathiesen fjármálaráðherra var borinn þungum sökum við upphaf þingfundar í dag þegar hver stjórnarandstæðingurinn á fætur öðrum fór í ræðustól og gagnrýndi hann fyrir að vera ekki búinn að taka ákvörðun um málshöfðun á hendur olíufélögunum fyrir samráð þeirra. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, hóf umræðuna. Innlent 25.11.2005 12:04
Borgin fer fram á 151 milljón Á fundi borgarráðs í gær var kynnt krafa Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum vegna samráðs í útboði árið 1996. Krafist er rúmlega 150 milljóna auk dráttarvaxta og innheimtukostnaðar. Innlent 23.10.2005 14:58
Olíufélögin fá á baukinn Stóru olíufélögin þrjú fá á baukinn í könnun sem tveir nemendur Háskólans í Reykjavík gerðu um ímynd fyrirtækja. Olíufélögin reyndust með afar slæma ímynd. Nemendurnir kenna samráði félaganna þar um. Innlent 13.10.2005 19:15
Olíufélögin borga 1,5 milljarða Stóru olíufélögin þrjú þurfa í dag að greiða ríkissjóði samanlagt einn og hálfan milljarð króna í sektir fyrir ólögmætt verðsamráð við sölu á bensíni og olíu hér á landi um árabil, þótt þau ætli að áfrýja málum sínum til dómstóla. Innlent 13.10.2005 19:09
Bara bætur vegna útboðs árið 1996 Líklegt er að Reykjavíkurborg fari aðeins fram á skaðabætur frá olíufélögunum Olís, Essó og Skeljungi vegna eins af þremur útboðum sem snertu borgina og fjallað er um í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Innlent 13.10.2005 15:31
Borgin í mál við olíufélögin Reykjavíkurborg er kominn í hóp fyrirtækja og félagasamtaka sem undirbúa skaðabótamál á hendur olíufélögunum vegna verðsamráðs. Viðskiptin sem um ræðir nema hundruðum milljóna króna. Innlent 13.10.2005 15:31
Sáttur við tilboð olíufélaganna Framkvæmdastjóri Ístaks, segir fyrirtækið ekki ætla að krefjast bóta vegna samráðs olíufélaganna. Hann segist sáttur við kjörin. Farið verður yfir gögn vegna Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:45
Óvíst hvort ríkið höfði mál Engar ákvarðanir hafa verið teknar um það hvort ríkið höfði skaðabótamál gegn olíufélögunum vegna samráðs þeirra. Fjármálaráðherra segir að réttarstaða ríkisins verði skoðuð. Innlent 13.10.2005 18:45
Staðfestir sakir olíufélaganna Guðmundur Sigurðsson, hjá Samkeppnisstofnun, segir áfrýjunarnefndina samkeppnismála staðfesta ólögmætt samráð olíufélaganna. Áfrýjunarnefndin lækkar sektir félaganna um rúman milljarð króna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:30
Rannsóknarhagsmunir í hættu Ríkislögreglustjóraembættið óttast að rannsókn Samkeppnisstofnunar á samráði olíufélaganna geti haft áhrif á niðurstöðu málsins og möguleika lögreglu til að rannsaka þátt einstakra manna. Rannsóknarhagsmunir séu í hættu rannsaki tvær stofnanir málið samtímis. Innlent 13.10.2005 15:30
Lögin valda óvissu Helgi Magnús Gunnarsson, hjá ríkislögreglustjóra, segir lög valda óvissu í rannsókn olíumálsins. Ekki er útilokað að olíufélögin sæti ákæru eftir rannsókn lögreglu. Á annan tug starfsmanna hafa réttarstöðu grunaðra. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:30
Borgin ætlar í mál Á fundi borgarráðs á fimmtudag mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri leggja fram tillögu um að hafin verði undirbúningur að skaðabótamáli gegn olíufélögunum, vegna ólöglegs samráðs við útboð Reykjavíkurborgar í olíuviðskiptum. Innlent 13.10.2005 15:30
Fresta afhendingu olíuyfirlits Starfsfólk Essó neitaði í liðinni viku viðskiptavinum sínum um yfirlit yfir viðskipti þeirra við félagið undanfarin ár. Töluvert var um að fólk óskaði eftir upplýsingunum eftir að Neytendasamtökin hvöttu almenning til að afhenda samtökunum nótur vegna olíukaupa. Það var gert vegna fyrirhugaðrar skaðabótakröfu sem rekin verður fyrir dómstólum. Innlent 13.10.2005 15:26
Alcan vill bætur frá olíufélögunum Forsvarsmenn Alcan, áður Ísal, hafa ákveðið að sækjast eftir bótum frá olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir fyrirtækið bera olíufélögin ótvíræða skaðabótaskyldu vegna þess. Ekki hefur verið ákveðið hvort beðið verði um viðræður við félögin áður en höfðað verður skaðabótamál. Innlent 13.10.2005 15:22
Deilt um hagnað af samráði Við málflutning fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála á mánudag var hart deilt á skýrslu þeirra Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Jóns Þórs Sturlusonar, sérfræðings á stofnuninni, sem þeir gerðu fyrir olíufélögin og var lögð fram til varnar olíufélögunum í haust. Innlent 13.10.2005 15:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent