Fjármálafyrirtæki
1 2 3 4 5 6 7 8 … 57 ›
Innáskipting hjá Kviku Sigurgeir Guðlaugsson, sem hefur verið varamaður í stjórn Kviku banka tekur sæti Guðmundar Arnar Þórðarsonar og kemur nýr inn í stjórn bankans. Guðmundur Örn tók á dögunum við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku. Viðskipti innlent 29.8.2024 13:05
Hagnaður Skaga fyrstu sex mánuði ársins 273 milljónir Kraftmikill viðsnúningur er í tryggingastarfsemi en á sama tíma litar krefjandi markaðsumhverfi afkomu Skaga, sem er samstæða Vátryggingafélags Íslands, áður VÍS. Hagnaður samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins eftir skatta voru 273 milljónir króna sem er töluvert lægri en á sama tíma í fyrra þegar hagnaður var rúmur milljarður. Þetta kemur fram í sex mánaða uppgjöri samstæðunnar fyrir árið í ár. Viðskipti innlent 28.8.2024 16:47
Hagstjórn á verðbólgutímum Verðbólgan hjaðnar hægar en vonir stóðu til og þrátt fyrir hátt vaxtastig er markmið Seðlabankans um 2,5% verðbólgu ekki í sjónmáli. Hvers vegna gengur ekki betur að ná tökum á verðbólgunni og hvað er til ráða? Skoðun 28.8.2024 09:30
Ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans Elvar Þór Karlsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hefja störf í vetur. Viðskipti innlent 26.8.2024 09:51
Lánskjaravakt Aurbjargar auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni Hvernig er hægt að vita hvort við séum að fá bestu kjörin á húsnæðisláninu okkar? Eru einhverjir betri lánamöguleikar þarna úti sem við vitum bara ekki af? Og hvernig í ósköpunum eigum við að hafa tíma til að grafa okkur í gegnum alla hugsanlega lánamöguleika? Samstarf 21.8.2024 11:31
Verðtryggingarskekkja bankanna í hæstu hæðum vegna ásóknar í verðtryggð lán Verðtryggingarskekkja stóru viðskiptabankanna, munurinn á verðtryggðum eignum og skuldum á efnahagsreikningi þeirra, hefur margfaldast á aðeins átján mánuðum samtímis því að heimili og fyrirtæki flykkjast yfir í verðtryggða fjármögnun í skugga hárra vaxta. Skuldabréfamiðlari telur sennilegt að þessi þróun muni halda áfram af fullum þunga á næstunni sem ætti að óbreyttu að viðhalda raunvöxtum hærri en ella. Innherji 13.8.2024 07:01
Stór bankafjárfestir kallar eftir „frekari hagræðingu“ á fjármálamarkaði Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku banka segir ljóst að sífellt strangara regluverk ásamt aukinni erlendri samkeppni kalli á meiri stærðarhagkvæmni og því sé eðlilegt að skoða hvort ekki séu tækifæri til „frekari hagræðingar“ á íslenskum fjármálamarkaði, en Landsbankinn er núna að klára kaup á TM af Kviku. Forstjóri Stoða, leiðandi hluthafi í umsvifamiklum ferðaþjónustufyrirtækjum, segir að ef Ísland sé orðið of dýr áfangastaður muni það „óumflýjanlega“ leiðréttast þannig að annaðhvort lækki verð á þjónustu eða gengi krónunnar gefi einfaldlega eftir. Innherji 9.8.2024 06:01
Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 var 5,5 milljarðar, samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins var 9,9 milljarðar, samanborið við 13,4 milljarða fyrstu sex mánuði 2023. Bankastjóri segir margt gott í uppgjöri bankans þrátt fyrir að arðsemismarkmiði hafi ekki verið náð. Viðskipti innlent 25.7.2024 16:35
Sváfu með fullt af evrum undir koddanum fyrir flugmiðum heim ef þyrfti „Satt best að segja fékk ég leið á sjálfum mér,” segir Ari Daníelsson, forstjóri Origo og hlær. Atvinnulíf 21.7.2024 08:01
Komust ekki inn á netbanka vegna bilunar Tímabundin bilun í tölvukerfum hjá Reiknistofu bankanna orsakaði truflanir á virkni Aur-appsins og bankaþjónustu Auðar. Báðar fjármálaþjónusturnar eru reknar af Kviku og áttu viðskiptavinir Auðar um tíma erfitt með að komast inn í netbanka. Viðskipti innlent 19.7.2024 22:22
Landsbankinn hagnaðist um 16 milljarða eftir skatt Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2024 nam 16,1 milljarði króna eftir skatta, þar af 9,0 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Viðskipti innlent 18.7.2024 15:56
Verðbréfafyrirtæki fá líklega að greiða hærri kaupauka en bankar Líklega verður verðbréfafyrirtækjum heimilt að greiða hærri kaupauka en viðskiptabankar þegar reglur vegna EES-samningsins verða leidd í lög hérlendis á næsta ári. Gildandi rammi er sagður óþarflega flókinn og íþyngjandi fyrir flest verðbréfafyrirtæki. Fjármála- og efnahagsráðuneytið bendir á að verðbréfafyrirtæki hafi ekki hliðstætt kerfislægt mikilvægi og lánastofnanir og því séu „ekki viðlíka samfélagslegir hagsmunir“ af því að takmarka áhættutöku þeirra með sama hætti og gildir um starfsemi banka. Innherji 10.7.2024 14:57
Bankasýsla ríkisins verði lögð niður Til stendur að leggja niður Bankasýslu ríkisins og flytja verkefni hennar til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Fjármálaráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda drög til umsagnar að frumvarpi þar sem lagt er til að sérstök lög sem nú gilda um Bankasýsluna verði felld úr gildi. Innlent 10.7.2024 12:58
Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. Viðskipti innlent 8.7.2024 08:29
Tveir af stærstu hluthöfunum seldu í Íslandsbanka fyrir vel á annan milljarð Tveir af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Íslandsbanka minnkuðu stöðu sína fyrir samanlagt vel á annan milljarð króna í liðnum mánuði þegar bankinn bauðst til að kaupa bréf hluthafa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Hlutabréfaverð bankans hefur rétt úr kútnum undanfarna daga en stjórnvöld áforma að ráðast í tugmilljarða sölu síðar á árinu í gegnum almennt útboð. Innherji 7.7.2024 12:24
Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Námafyrirtækið Amaroq Minerals Ltd. hefur ráðið Ellert Arnarson sem fjármálastjóra félagsins og hann hefur störf í ágúst. Viðskipti innlent 5.7.2024 08:56
Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hafi brotið gegn ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Margvíslegar athugasemdir eru gerðar við starfshætti í tengslum við áhættumat bankans, áreiðanleikakannanir og rekjanleika í upplýsingakerfum. Viðskipti innlent 3.7.2024 18:11
„Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ er dæmi um skilaboð sem einstaklingur fær frá maka sínum á Facebook Messenger sem virðast saklaus þar sem óskað er eftir að samþykkja beiðni um innskráningu í heimabanka með rafrænum skilríkjum. Við treystum okkar nánustu og erum því líkleg til að fara eftir fyrirmælunum í slíkum tilfellum, án þess að velta því endilega mikið fyrir okkur. Skoðun 3.7.2024 09:00
Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Arion banki hefur gert sátt við Seðlabanka Íslands og verður gert að greiða sekt að fjárhæð 585 milljóna króna ásamt því að skuldbinda sig til úrbætur vegna brota gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Viðskipti innlent 28.6.2024 16:40
Útlán til fyrirtækja tóku sextíu milljarða stökk og hafa aldrei mælst meiri Ágætis þróttur er í nýjum útlánum bankakerfisins til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir þröng lánþegaskilyrði en í maí námu þau meira en sextíu milljörðum og hafa aldrei mælst meiri í einum mánuði. Vöxturinn er sem fyrr drifinn áfram af ásókn fyrirtækja í verðtryggð lán á tímum hárra vaxta auk þess sem mikil aukning er í lánum í erlendum gjaldmiðlum. Innherji 27.6.2024 17:52
JPMorgan Chase afnemur hámark á bónusa í Bretlandi Bandaríski stórbankinn JPMorgan Chase hefur fetað í fótspor Goldman Sachs og tilkynnt starfsfólki sínu í Bretlandi að það muni afnema hámark á kaupaukagreiðslur. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent af árslaunum sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað sem kann að auka rekstraráhættu fyrirtækja, einkum þeirra minni. Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Innherji 26.6.2024 15:49
Gullhúðun gerir óverðtryggð lán með föstum vöxtum dýrari Gullhúðun, sem átti að verja neytendur, gerir það að verkum að óverðtryggð lán með föstum vöxtum eru dýrari en annars væri, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka. Þegar reglur séu settar þurfi að fylgja þeim vel eftir, horfa á stóru myndina og meta heildaráhrifin til lengri tíma. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sagt að fyrirkomulagið smitist yfir í skuldabréfamarkað því bankar geti fyrir vikið ekki fjármagnað sig með löngum sértryggðum skuldabréfum á móti fastvaxtaíbúðalánum. Innherji 24.6.2024 18:14
Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó Sparisjóðurinn Indó býður nú viðskiptavinum sínum að loka á fjárhættuspil. Þau sem kjósi að virkja lokunina muni ekki geta notað debetkortið sitt á veðmála- og fjárhættuspilavefsíðum né á flestum sölustöðum spilakassa. Viðskipti innlent 21.6.2024 11:42
Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 13.6.2024 11:28
Óumtalaði Alkemistinn Mér þykir oft skrýtið hversu fáir átta sig á því að mannfólkið hefur fyrir þó nokkru leyst hina dularfullu ráðgátu sem Alkemistar forðum eyddu allri sinni ævi í að leysa. Fyrir þau okkar sem hafa skoðað þessi mál, þá sýnum við þó skilning á hvers vegna það er; tungumál okkar hefur einfaldlega ekki enn fengið merkingafræðilega „uppfærslu“. Skoðun 7.6.2024 13:31
„Nokkuð einhæf“ fjármögnun eykur endurfjármögnunaráhættu bankanna Markaðsfjármögnun stóru viðskiptabankanna innanlands er enn „nokkuð einhæf“ og eigi að takast að minnka endurfjármögnunaráhættu þeirra er mikilvægt að þeim takist að auka útgáfur ótryggðra skuldabréfa í krónum, að sögn Seðlabankans. Bankarnir hafa hins vegar nýtt sér hagfelldari aðstæður á erlendum mörkuðum á þessu ári til að sækja sér fjármagn á betri kjörum en áður sem ætti að hafa jákvæð áhrif á útlánavexti. Innherji 6.6.2024 11:03
Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Árni Oddur Þórðarson hefur gert sátt við Arion banka og endurheimt alla hluti í Eyri invest sem bankinn leysti til sín í nóvember síðastliðnum. Hann fer nú ásamt föður sínum og öflugum hópi fjárfesta með 39 prósenta hlut í félaginu. Hópurinn verður stærsti einkafjárfestirinn í sameinuðu félagi JBT og Marel. Viðskipti innlent 5.6.2024 15:43
Varar við þenslu á byggingamarkaði Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar. Viðskipti innlent 5.6.2024 14:01
Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:34
Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Íslandsbanki hefur tekið sáttaboði fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti. Bankinn viðurkennir að brotin séu mörg og alvarleg. Viðskipti innlent 1.6.2024 15:11