Landhelgisgæslan
1 2 3 4 5 6 7 … 29 ›
Þór á leið í Hornvík vegna óljóss neyðarkalls Neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum um hádegisbil, en ekki er ljóst hvaðan það barst. Óskað var eftir aðstoð áhafnar á varðskipinu Þór, sem verður komið á vettvang í kvöld. Innlent 5.9.2024 16:13
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. Innlent 2.9.2024 23:02
Landhelginni ekki sinnt sem skyldi og sæstrengir illa varðir Skortur á flugvél gerir Landhelgisgæslunni ókleift að sinna landhelginni sem skyldi og lykilinnviðir eins og sæstrengir eru illa varðir fyrir vikið, að sögn forstjóra Gæslunnar. Hann telur óásættanlegt að ekki sé hægt að halda úti að minnsta kosti einni flugvél. Innlent 30.8.2024 22:01
Falsboðið hafi borist erlendis frá Falsboðið sem lögreglu barst, þegar tilkynnt var að tveir ferðamenn væru fastir í helli í Kerlingarfjöllum, kom erlendis frá miðað við IP-tölu tækisins sem skilaboðin voru send úr. Innlent 29.8.2024 13:19
Kona á sjötugsaldri dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag til að sækja konu á sjötugsaldri sem hafði verið dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru. Konan var komin til meðvitundar áður en hún var sótt með þyrlu og send til skoðunar á sjúkrastofnun. Innlent 27.8.2024 16:29
Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólarhringinn Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði. Innlent 27.8.2024 11:20
Ferðir heimilar allan ársins hring en deilt um manngerða hella „Við treystum þeim fyrirtækjum sem við gerum samninga við að beita sinni bestu dómgreind í mati á aðstæðum og slysin geta alltaf gerst því miður,“ sagði Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, í samtali við fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær. Innlent 26.8.2024 06:57
Tjaldbúðir fluttar upp á jökul Unnið er í teymum við björgunarstarf þar sem hópur björgunarmanna vinnur við að grafa í ísinn og leita að ferðamönnunum tveimur sem saknað er á meðan aðrir hvíla sig. Innlent 25.8.2024 22:10
Björgunarstarf haldi áfram inn í kvöldið og nóttina Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögregluna vera með þokkalega skýra mynd af aðstæðum á Breiðamerkurjökli þar sem tveimur hefur verið komið undan ís og tveggja er enn leitað eftir að ísveggur hrundi við íshelli. Innlent 25.8.2024 19:42
Alvarlegt slys er ísveggur hrundi í Breiðamerkurjökli Einn er látinn og annar alvarlega slasaður eftir að ísveggur í Breiðamerkurjökli hrundi. Tilkynning barst viðbragðsaðilum klukkan 15 og hefur umfangsmikil leit að tveimur ferðamönnum til viðbótar, sem urðu undir ísfargi, staðið yfir. Innlent 25.8.2024 16:01
Umfangsmikið viðbragð vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar til vegna slyss á eða við Breiðamerkurjökul. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við Vísi, að þyrlurnar hafi verið kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 25.8.2024 15:24
Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38
Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli fyrir viku síðan. Brynjar Karl Óttarsson, grunnskólakennari á Akureyri og umsjónarmaður síðunnar Grenndargralsins, var viðstaddur eyðinguna og segir allt hafa gengið vel. Innlent 14.8.2024 13:31
Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að bát hvolfdi í Hvalfirði. Tilkynning barst um málið á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfn á sjómælingaskipinu Baldri og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út. Innlent 12.8.2024 21:14
Ferðamenn í báðum bifreiðum Enn er lokað fyrir umferð um Hringveginn við Skeiðarársand eftir harðan árekstur tveggja fólksbifreiða í Öræfasveit við Gígjukvísl upp úr klukkan 14 í dag. Tveir erlendir ferðamenn voru í hvorri bifreið og hafa þeir allir fjórir verið fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 12.8.2024 18:06
Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Alvarlegur árekstur varð í Öræfasveit við Gígjukvísl á þriðja tímanum í dag þegar tveir bílar skullu saman. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og mikill viðbúnaður er á svæðinu. Lokað er fyrir umferð um veginn. Innlent 12.8.2024 14:50
Féll af hesti og var án meðvitundar Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur vegna slyss sem varð á þriðja tímanum í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Innlent 12.8.2024 14:45
Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir það enn til rannsóknar hjá embættinu hvaðan tilkynningin kom um týndu ferðamennina í Kerlingarfjöllum í síðustu viku. Umfangsmikil leit fór fram að tveimur ferðamönnum en eftir um tveggja daga leit tilkynnti lögregla að um gabb hefði verið að ræða og frestaði leitinni. Innlent 12.8.2024 11:35
Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir grafalvarlegt að menn gabbi viðbragðsaðila í áhættusöm og stór útköll, líkt og útlit er fyrir að gert hafi verið með tilkynningu um ferðamenn sem áttu að sitja fastir í helli í Kerlingarfjöllum. Tilkynningin barst í gegnum netspjall Neyðarlínunnar, en framkvæmdastjóri hennar segir vont ef herða þarf að þeim möguleika. Innlent 7.8.2024 19:28
Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi lítur það mjög alvarlegum augum að allt bendi til þess að útkall í Kerlingarfjöllum í fyrrakvöld hafi verið gabb. Hann segir alla skilja eftir sig slóð á Internetinu sem nú verði rakin. Hann hvetur viðkomandi til að stíga fram og viðurkenna mistök sín. Innlent 7.8.2024 13:05
Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Landhelgisgæslan lítur það mjög alvarlegum augum ef útkall í Kerlingarfjöllum á mánudag reynist gabb. Vegna reglna um hvíldartíma geti gæslan ekki alltaf viðhaft fulla þjónustu úti á sjó þegar fara þurfi í útkall, og blóðugt að slík staða komi upp vegna útkalla sem reynist ekki á rökum reist. Innlent 7.8.2024 12:02
Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum er ekki talinn vera á vegum ferðamannanna tveggja sem tilkynntu að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 17:36
Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Ekki er víst að bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum sé á vegum ferðamanna sem tilkynntu Neyðarlínunni í netspjalli í gær að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 16:19
Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Leitarsvæðið við Kerlingarfjöll er mjög torsótt og erfitt yfirferðar fyrir göngufólk, hjól og jeppa, en björgunarsveitir hafa sett mikinn kraft í leit með drónum. Landslagið er síbreytilegt vegna snjóa, rigningar og drullu. Leit hefur staðið yfir að ferðamönnum sem taldir eru fastir í helli við Kerlingarfjöll síðan í gærkvöldi. Innlent 6.8.2024 14:52
Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Björgunarsveitir hafa fundið það sem þau telja fyrstu vísbendinguna sem hægt er að vinna eftir, í leit að tveimur ferðamönnum sem talið er að séu fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum. Bílaleigubíll sem skráður er á tvo ferðamenn fannst við tjaldstæði. Enginn á svæðinu kannast við að bera ábyrgð á bílnum. Kallað hefur verið til leitarhunda. Innlent 6.8.2024 13:51
Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Leitin að ferðamönnunum sem gengið var út frá að væru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum hefur enn engan árangur borið. Búið er að leita á þeirri staðsetningu sem gefin var upp í upphaflegu tilkynningunni án þess að nokkrar vísbendingar hafi fundist. Nú er verið að víkka út leitarsvæðið. Innlent 6.8.2024 12:29
Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Ferðamenn sem leitað hefur verið að nærri Kerlingarfjöllum á miðhálendinu síðan í gærkvöldi höfðu samband við netspjall Neyðarlínunnar og gáfu upp staðsetningarhnit. Netspjallið lokaðist í framhaldinu og enginn hefur fundist nálægt þeirri staðsetningu sem gefin var upp. Innlent 6.8.2024 10:13
Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi vegna slasaðs ferðamanns á Baulu. Aðstæður voru erfiðar og þrátt fyrir að búið væri að finna manninn um klukkan tvö í nótt tókst þyrlu ekki að koma að fyrr en um klukkan fjögur. Innlent 6.8.2024 06:34
Kajakræðarar í hættu hífðir upp Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnti fyrir skömmu útkalli við Skildinganes þar sem tveir kajakræðarar ráku frá landi. Heppileg staðsetning þyrlunnar skipti sköpum. Innlent 3.8.2024 19:18
Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist útkall djúpt norður af Vestfjörðum vegna veikinda um borð í skemmtiferðaskipi á Grænlandssundi snemma í morgun. Innlent 3.8.2024 11:43