Fréttir af flugi
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 144 ›
Níu saknað eftir að flugvél hrapaði í Washington Einn er látinn og níu er saknað eftir að flugvél hrapaði í Puget-sund í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Leit að fólkinu stendur enn yfir en ekki er vitað hvers vegna flugvélin hrapaði. Erlent 5.9.2022 09:46
Voru um borð í vélinni sem fórst í Eystrasalti Þýski frumkvöðullinn Peter Griesemann, eiginkona hans Juliane og dóttir þeirra Lisa, auk annars karlmanns, voru um borð í einkaflugvélinni sem hrapaði á lettnesku hafsvæði í Eystrasalti í gærkvöldi. Erlent 5.9.2022 08:01
Einkaþota hrapaði í Eystrasalt Talið er að lítil einkaþota með fjóra innanborðs hafi hrapað í Eystrasalt við Lettland. Samkvæmt flugáætlun var vélin á leið frá Spáni til Kölnar í Þýskalandi. Þegar vélin var flogin fram hjá Köln reyndu flugumferðarstjórar að ná sambandi við flugmenn hennar án árangurs. Erlent 4.9.2022 18:26
Már kannar hvort blindur maður geti flogið flugvél Sund- og tónlistarmaðurinn síkáti Már Gunnarsson hefur gert ýmislegt magnað á lífsleiðinni, eins og til dæmis að slá heimsmet í sundi og freistað þess að taka þátt í Eurovision. Nú virðist flugklefinn næsti áfangastaður Más. Lífið 4.9.2022 15:27
Flugvélin lenti harkalega á engi í Mississippi Flugvélinni sem hringsólaði tímunum saman í Tupelo í Mississippi hefur verið lent. Flugmaðurinn hafði hótað að fljúga vélinni á Walmart verslun á svæðinu en verslanir í kring voru rýmdar í kjölfarið. Erlent 3.9.2022 17:29
Hótaði að fljúga stolinni flugvél á Walmart Verslun Walmart í Tupelo í Mississippi í Bandaríkjunum var rýmd í morgun eftir að flugmaður stolinnar flugvélar hótaði að fljúga vélinni á verslunina. Erlent 3.9.2022 16:00
Afla upplýsinga vegna atviksins á Keflavíkurflugvelli Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið upplýsingaöflun vegna flugatviks sem varð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, þegar hætt var við lendingu flugvélar Icelandair á leið frá München í Þýskalandi. Innlent 2.9.2022 11:11
Flugvél á flugbraut þegar önnur vél átti að lenda Flugvél á vegum Icelandair þurfti að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær þar sem önnur vél var á flugbrautinni. Atvikið er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 1.9.2022 22:39
Auglýsa eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum Flugfélagið Play hefur ákveðið að auglýsa eftir 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf, auk 55 flugmanna, bæði með og án reynslu. Viðskipti innlent 1.9.2022 09:53
Lítur út fyrir að flugvöllur í Hvassahrauni sé úr myndinni Formaður borgarráðs segir það líti út fyrir að flugvöllur í Hvassahrauni sé úr myndinni. Þó þurfi enn að bíða eftir niðurstöðum starfshóps til þess að útiloka hann alveg. Innlent 29.8.2022 18:54
Flugmenn Air France í straff eftir átök í flugstjórnarklefa Tveimur flugmönnum hjá franska flugfélaginu Air France hefur tímabundið verið vikið frá störfum eftir að til átaka kom milli þeirra inni í flugstjórnarklefanum í miðju flugi. Erlent 29.8.2022 07:27
Svona panta Akureyringar kvöldmat frá veitingastað í Reykjavík Íbúar á Akureyri hafa tekið upp á því að panta heitan kvöldmat alla leið frá veitingastað í Reykjavík, en hvernig getur það gengið upp? Fréttastofa komst að því. Neytendur 28.8.2022 07:01
Segir Reykjavíkurflugvöll gríðarlega mikilvægan varavöll millilandaflugs Yfirflugstjóri Icelandair segir gríðarlega mikilvægt að geta notað Reykjavíkurflugvöll sem varavöll millilandaflugs og kallar eftir betri innviðum á vellinum. Hann spari Icelandair hálfan milljarð króna á ári í eldsneytiskostnað og dragi verulega úr útblæstri koltvísýrings. Innlent 26.8.2022 22:12
Vetraráætlunin á pari við þá sem var fyrir faraldur Vetraráætlun Icelandair er nokkurn veginn á pari af því framboði sem var veturinn 2019 til 2020, fyrir heimsfaraldur. Mest er tíðni flugferða félagsins til Kaupmannahafnar, London, New York og Boston. Viðskipti innlent 24.8.2022 10:16
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. Innlent 24.8.2022 06:30
Munu einnig fljúga til Dulles-flugvallar Flugfélagið Play hyggst fljúga til Dulles-flugvallar í bandarísku höfuðborginni Washington DC frá og með í apríl á næsta ári. Viðskipti innlent 23.8.2022 10:11
Bein útsending: Kynning á uppgjöri annars ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 23.8.2022 07:59
Rekstrartekjur fara ört vaxandi en tap nam tveimur milljörðum á öðrum ársfjórðungi Tap flugfélagsins Play nam 14,3 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,02 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi 2022. Viðskipti innlent 22.8.2022 20:41
Flugmenn sofnuðu og gleymdu að lenda Tveir flugmenn þotu flugfélagsins Ethiopia Airlines sofnuðu og gleymdu að lenda þotunni á flugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu á dögunum. Erlent 19.8.2022 20:06
Lenti á Reykjavíkurflugvelli á leið sinni í kringum jörðina Mack Rutherford, sem ætlar að verða yngsti flugmaðurinn til að fljúga einsamall hringinn í kringum jörðina, lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fjögur í dag. Innlent 19.8.2022 18:18
Veðja á hljóðfráar farþegaþotur að nýju Bandaríska flugfélagið American Airlines hefur lagt inn pöntun fyrir allt að tuttugu hljóðfráun farþegaþotum frá flugvélaframleiðendanum Boom Supersonic. Hljóðfráar farþegaþotur hafa ekki verið í notkun frá því að hætt var að fljúga Concorde vélum snemma á þessari öld. Viðskipti erlent 16.8.2022 23:30
Gunni og Felix að bugast vegna hávaða frá þyrlum Gósentíð er nú hjá þyrlufyrirtækjum vegna gossins á Reykjanesi. En ekki eru allir kátir með ónæðið sem er því samfara; þeir eru reyndar fjölmargir sem vilja segja hingað og ekki lengra. Þeir Gunni og Felix skemmtikraftar eru þeirra á meðal. Innlent 16.8.2022 10:38
Myndir úr óleyfilegri myndavél varpa ljósi á hrap herflugvélar í Noregi Myndir úr myndskeiði sem tekið var upp með GoPro-myndavél sem smyglað var um borð í bandaríska herflugvél sem hrapaði í Noregi í mars þykja varpa ljósi á orsakir slyssins. Erlent 15.8.2022 23:32
Gögn sýna viðspyrnu Icelandair Greining sem Ferðamálastofa hefur unnið sýnir að Icelandair hafi náð einna bestri viðspyrnu norræna flugfélaga í sumar, í fjölda farþega talið. Viðskipti innlent 10.8.2022 14:03
Brottfarir erlendra ferðamanna fleiri nú í júlí en árið 2019 Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru rúmlega 234 þúsund í júlímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þetta er meiri fjöldi en árið 2019 og um leið fjórði fjölmennasti júlímánuðurinn frá því að mælingar hófust. Innlent 10.8.2022 11:40
Fundu líkamsleifar og flugvél í Ölpunum Á miðvikudaginn gengu tveir fjallagarpar fram á flugvél í Alpafjöllunum í Sviss sem hafði hrapað í fjallinu fyrir tæpum fimmtíu árum síðan. Við hlið vélarinnar voru líkamsleifar manns. Erlent 9.8.2022 22:16
Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021 Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021. Viðskipti innlent 8.8.2022 10:26
Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri. Viðskipti innlent 8.8.2022 09:58
Segja of snemmt að útiloka byggingu flugvallar í Hvassahrauni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segja báðir rétt að bíða eftir niðurstöðum áhættumats Veðurstofu Íslands vegna flugvallar í Hvassahrauni; of snemmt sé að útiloka þann möguleika. Innlent 8.8.2022 07:25
Tryggja þurfi nýjan varaflugvöll og Reykjavíkurflugvöllur komi ekki til greina Borgarstjóri segir óraunhæft að Reykjavíkurflugvöllur komi í stað hugmynda um flugvöll í Hvassahrauni. Byggja þurfi upp flugvöll á Suðvesturhorninu sem tekið geti við alþjóðaflugi. Reykjavíkurflugvöllur sé ekki undir það búinn. Innlent 6.8.2022 13:35