Fréttir
227 228 229 230 231 232 233 234 235 … 334 ›
Rannsóknarnefnd skipuð Það á einnig að greiða aðgengi þeirra manna sem vistaðir voru í Breiðavík sem börn að sálfræðiþjónustu. Þetta tilkynnti forsætisráðherra í morgun og einnig að skipa eigi nefnd til að rannsaka þau barnaheimili sem rekin voru á árum áður. Innlent 13.2.2007 19:30
Áfallateymi stofnað fyrir fórnarlömb Byrgisins Enn fjölgar kærum á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins. Sex stúlkur hafa nú lagt fram kæru vegna kynferðislegrar misnotkunar og áreitis. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að komið yrði á fót áfallateymi á Landspítalanum sem liðsinni og leiðbeini fyrrverandi skjólstæðingum Byrgisins. ,,Trúi því þegar ég sé það" segir ein þeirra stúlkna sem kært hefur Guðmund. Innlent 13.2.2007 19:25
Lausn í kjarnorkudeilu Norður-Kóreumanna Langvinnri deilu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumenn virðist nú lokið með fyrsta skrefi stjórnvalda í Pyongyang að kjarnorkuvopnalausum Kóreuskaga. Samkvæmt nýju samkomulagi verður áætlunin lögð á hilluna í skiptum fyrir eldsneyti. Erlent 13.2.2007 17:35
Utanríkiráðuneytið styrkir verkefni gegn barnahermennsku Utanríksráðherra hefur ákveðið að styrkja verkefni Rauða krossins vegna baráttunnar gegn barnahermennsku í Síerra Leóne um 10,6 m.kr. Framlagið rennur að hluta til byggingar endurhæfingarathvarfa þar sem börn og ungmenni fá bæði kennslu og sálræna aðstoð vegna afleiðinga borgarastyrjaldarinnar. Sérstök athvörf verða byggð fyrir ungar mæður þar sem þær fá aðstöðu fyrir börn sín meðan þær stunda nám. Innlent 13.2.2007 19:19
Hvíldarbelgir vinsælir í Bandaríkjunum Það er ekki amalegt að geta tekið sér miðdegislúr í vinnunni til að hlaða batteríin fyrir átök síðdegisins. Fyrirtæki í Bandaríkjunum hefur hannað sérstaka hvíldarbelgi sem nú eru kynntir hjá hverju stórfyrirtækinu á eftir öðru þar í landi. Erlent 13.2.2007 17:58
Ætlar að deyja með reisn Þrítug bresk kona berst nú fyrir því að læknar í Bretlandi veiti henni meðferð sem mun draga hana til dauða. Hún þjáist af tveimur alvarlegum sjúkdómum og læknar segja hana ekki lifa út árið. Sjálf segist hún vilja ráða brottfarartíma sínum og deyja með reisn. Erlent 13.2.2007 17:52
Hvalaverndarsinnar mættu ekki Nær helmingur aðildarþjóða Alþjóðahvalveiðiráðsins situr ekki aukafund þess í Japan. Þar á að reyna að bæta ákvarðanatökuferli innan ráðsins. Á sama tíma harðna átök verndarsinna og japanska flotans í Suður-Íshafi. Erlent 13.2.2007 17:46
Vill að Alþingi fresti breytingum á samkeppnislögum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vill að Alþingi fresti fram á haust afgreiðslu á frumvarpi til breytinga á samkeppnislögum, sem hann segir ráðast af refsigleði. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra vill ekki fresta málinu en útilokar ekki breytingar á frumvarpinu í meðförum þingsins. Innlent 13.2.2007 16:23
Þögul mótmælastaða kennara Svekktir og sárir kennarar efndu til þögullar mótmælastöðu á Lækjartorgi í dag. Kennarar hugleiða uppsögn samninga eftir nítján fundi með launanefnd sveitarfélaga sem engu hafa skilað, segir formaður Félags grunnskólakennara. Innlent 13.2.2007 18:06
Deilum um sölu Íslenskra aðalverktaka vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi kröfu eigenda Trésmiðju Snorra Hjaltasonar og JB byggingafélags um að viðurkennt yrði að útboð vegna sölu á tæplega fjörutíu prósenta hlut ríkisins í íslenskum aðalverktökum væri ólögmætt. Þá var íslenska ríkið sýknað af kröfu stefnenda um skaðabætur. Innlent 13.2.2007 17:41
Romney tilkynnir um framboð til forseta Bandaríkjanna Mitt Romney hefur lýst því yfir að hann ætli að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Hann er fyrsti frambjóðandi repúblikana til þess að staðfesta framboð sitt. Erlent 13.2.2007 18:24
Frá afturvirkri stefnubreytingu í stóriðjumálum til framvirkrar þjóðarsáttar Iðnaðarráðherra var sakaður um að misnota orðið þjóðarsátt í kynningu á frumvarpi um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Ráðherrann mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í morgun. Vinstri grænir óskuðu eftir tvöföldum ræðutíma við fyrstu umræðu málsins vegna mikilvægis þess. Innlent 13.2.2007 17:51
Yfirheyrslum enn ólokið Nú er ljóst yfirheyrslum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, lýkur ekki á morgun eins og til stóð. Saksóknari á enn eftir að spyrja út í nokkra ákæruliði og segist þurfa lengri tíma. Eftir hádegi í dag var þriðji kafli ákærunnar til umfjöllunar, nánar tiltekið ákæruliðir 10 til 13. Þeir snúa að meintum bókhaldsbrotum Jóns Ásgeirs og að hluta til Tryggva Jónssonar, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs. Innlent 13.2.2007 17:12
Fæðingarorlofsgreiðslur leiðréttar Reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks hefur verið breytt. Horfið hefur verið frá því að greiðslur úr sjóðnum vegna fyrra fæðingarorlofs verði lagðar til grundvallar við útreikning greiðslna úr sjóðnum í síðara fæðingarorlofi. Innlent 13.2.2007 16:46
Hagnaður Nasdaq 4,3 milljarðar króna Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq skilaði 63 milljóna dala hagnaði á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Það svarar til 4,3 milljarða íslenskra króna og jafngildir þreföldun frá því á sama tíma árið 2005. Tekjur markaðarins tvöfölduðust á sama tímabili. Viðskipti erlent 13.2.2007 16:38
al-Kaída að verki í Alsír Hryðjuverkahópur tengdur al-Kaída hefur lýst ábyrgð á sprengingum í Alsír í dag á hendur sér. Alls sprungu sjö sprengjur í námunda við fjórar lögreglustöðvar. Talið er að sex manns hafi látist og 13 slasast í sprengingunum. Sprengjurnar sprungu samtímis. Sjónvarpsstöðin al-JAzeera skýrði frá þessu í dag. Erlent 13.2.2007 16:26
Bifreið hafnaði á vegg Litlu munaði þegar þrítug kona missti stjórn á jepplingi í austurborginni síðdegis í dag. Bíllinn fór upp nokkrar tröppur og stöðvaðist á vegg við hliðina á inngang í verslun. Engan sakaði en bíllinn er þó nokkuð skemmdur. Innlent 13.2.2007 16:23
Ólöglegir innflytjendur geta fengið kreditkort Bank of America er byrjaður að bjóða kreditkort til viðskiptavina sinna sem hafa ekki kennitölu. Undanfarin ár hafa bankar boðið reikninga og jafnvel lán til fólks sem ekki hefur kennitölu . En kreditkort hefur það ekki getað fengið fyrr en nú. Erlent 13.2.2007 16:12
Kennarar mótmæla launum Mótmæli á sjötta tug grunnskólakennara fóru friðsamlega fram í miðbæ Reykjavíkur í dag. Kennarar í Fellaskóla efndu til mótmælanna en þeir leggja áherslu á launakjör. Fylkingin gekk frá Lækjartorgi að Austurvelli og Ráðhúsinu. Innlent 13.2.2007 15:54
Metviðskiptahalli í Bandaríkjunum Viðskiptahalli Bandaríkjanna nam 763,6 milljörðum bandaríkjadala á síðasta ári. Það svarar til 52.200 milljarða íslenskra króna og hefur hann aldrei verið meiri. Mestu munar um tíðar verðhækkanir á hráolíu á síðasta ári og aukinn innflutning á vörum frá Kína. Viðskipti erlent 13.2.2007 15:54
Írak lokar landamærum sínum Írakar ætla að loka landamærum sínum við Sýrland og Íran til þess að reyna að koma í veg fyrir þá öldu ofbeldis sem gengið hefur yfir landið að undanförnu. Einnig á að lengja útivistarbann sem hefur ríkt í höfuðborginni á kvöldin. Báðar aðgerðirnar eru hluti af nýju skipulagi Íraka og Bandaríkjamanna sem á að binda endi á ofbeldið í landinu. Erlent 13.2.2007 15:46
Þjóðin getur tekið í stóriðjubremsuna Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu voru til umræðu á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna sagðist vona að málið kæmi til kasta í kosningum: "Þjóðin getur tekið í bremsuna í maí." Steingrímur talaði hart gegn stóriðjuáformum ríkisstjórnarinnar og sagði að þjóðin myndi rísa upp gegn ofnotkun á landinu; "Það þarf ekki að færa þessar fórnir." Innlent 13.2.2007 15:31
Marel undir væntingum Marel skilaði 159 þúsunda evra hagnaði á síðasta ári. Það svarar til 5,7 milljóna króna hagnaði á árinu samanborið við 5,7 milljóna evra, eða 507,8 milljóna króna, hagnað árið 2005. Fyrirtækið skilaði 500 þúsunda evra tapi á fjórða ársfjórðungi 2006. Það svarar til 44,4 milljóna króna taps sem er talsvert undir spám greinenda. Veltan tvöfaldaðist á á síðasta fjórðungi síðasta árs. Viðskipti innlent 13.2.2007 15:29
Ekki hægt að stöðva Írana Íranar eiga eftir að geta auðgað nóg af úrani til þess að nota í kjarnorkusprengju og það er lítið hægt að gera til þess að koma í veg fyrir það. Þetta kemur fram í innanhússkýrslu Evrópusambandsins. Financial Times sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. Erlent 13.2.2007 15:17
Spurningum Gests frestað Dómari í Baugsmálinu ákvað að fresta spurningum Gests Jónssonar til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna 17. ákæruliðar í Baugsmálinu. Sá liður felur í sér meiri háttar bókhaldsbrot Baugs vegna Kaupþings í Luxemborg á árinu 1999. Þótti Arngrími Ísberg dómara eðlilegt að taka þær spurningar samhliða öðrum ákæruliðum síðar. Innlent 13.2.2007 15:07
Leikfélag Akureyrar styrkt um 322 milljónir Akureyrarbær undirritaði í dag samning um styrk til Leikfélags Akureyrar um 322 milljónir á næstu þremur árum. Styrkurinn er hluti af samkomulagi milli Akureyrarbæjar og Menntamálaráðuneytisins um samstarf í menningarmálum. Stefnt er að auknu umfangi í starfsemi leikhússins frá og með árinu 2009 með fjölgun uppsetninga m.a. í nýju menningarhúsi. Innlent 13.2.2007 14:28
Fjórir mánuðir fyrir vörslu amfetamíns Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára. Amfetamínið fannst þegar lögregla gerði húsleit á heimili mannsins og fann tæplega 120 grömm af efninu. Ákærði játaði brotið en hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Innlent 13.2.2007 12:52
Hafin yfir eigin lög og reglur Svo virðist sem Farþegaflutningar Flugmálastjórnar séu að minnsta kosti siðlausir, ef ekki ólöglegir, segir ritstjóri fréttabréfs Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Elmar Gíslason ritstjóri fjallar um málið vegna óhapps sem varð á Reykjavíkurflugvelli nýverið, þegar vél hlekktist á með sex farþega Flugstoða um borð. Innlent 13.2.2007 12:25
Spenna á milli saksóknara og Jóns Ásgeirs í morgun Hugsanlegt er að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, komi aftur til skýrslutöku í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag þar sem útlit er fyrir að yfirheyrslum yfir honum ljúki ekki á morgun eins og til stóð. Töluverð spenna hefur einkennt samskipti hans og setts saksóknara, Sigurðar Tómasar Magnússonar, við yfirheyrslur vegna meintra bókhaldsbrota í morgun. Innlent 13.2.2007 12:50
Ók á ljósastaur á Miklubraut Töluverðar tafir urðu á umferð á Miklubraut við Lönguhlíð um klukkan tíu í morgun. Fólksbíl var ekið á ljósastaur og loka þurfti veginum á meðan lögregla athafnaði sig á staðnum. Ekki urðu alvarleg slys á fólki og var Miklabrautin opnuð aftur fyrir ellefu. Innlent 13.2.2007 12:10