Setja á fót leigutorg aðeins ætlað Grindvíkingum Stjórnvöld leita nú að leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eigendum fasteigna gefst nú kostur á að skrá íbúð sína til leigu á sérstöku leigutorgi sem eingöngu er ætlað Grindvíkingum. 2.12.2023 14:44
„Sorglegt“ ef pökkunum undir trénu fer ekki að fjölga Árleg jólagjafasöfnun Kringlunnar fyrir börn sem búa við bágan kost fer mjög illa af stað. Markaðsstjóri Kringlunnar segir það verða sorglega niðurstöðu ef söfnunin taki ekki við sér. 2.12.2023 13:47
Í beinni: Úrslit Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák Úrslit Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák fara fram í dag en mótið er haldið af hlaðvarpsstrákunum í Chess After Dark. 2.12.2023 13:00
Vélinni snúið við á miðri leið Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun. 2.12.2023 12:07
Stakk Chauvin 22 sinnum Samfangi Dereks Chauvin, fyrrverandi lögreglumannsins sem myrti George Floyd í maí 2020, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk Chauvin 22 sinnum í alríkisfangelsi í Arizona í síðasta mánuði. 2.12.2023 11:07
Leigusalar verði að átta sig á ábyrgðinni Slökkviliðsstjóri segir leigusala verða að átta sig á ábyrgð sinni þegar kemur að brunavörnum. Húsið við Stangarhyl í Árbæ, þar sem eldur kom upp í morgun, var ekki samþykkt íbúðarhúsnæði. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi vegna brunans 26.11.2023 20:01
Vaknaði við sprengingar meðan kollegarnir eyddu nóttinni í sprengjubyrgi Sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu segir óhugnanlegt að hafa vaknað upp við sprengjudrunur í Kænugarði í gærmorgun, þegar Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á borgina. Úkraínumenn minntust þess í gær að 90 ár eru liðin frá hungurmorðum Rússa á milljónum Úkraínumanna. 26.11.2023 13:42
Staðráðin í að snúa aftur „hvað sem það kostar“ Grindvíkingar fengu að fara með flutningabíla inn í bæinn í dag, til að vitja fleiri muna en þeirra nauðsynja sem þeir hafa hingað til getað sótt. Þeir íbúar sem fréttastofa hitti á eru staðráðnir í að Hflytja aftur heim. Hugsanlegt er að hluti kvikunnar undir bænum sé storknaður. 25.11.2023 19:52
Stríðinu muni ekki ljúka þótt gíslarnir komi heim Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas munu halda áfram, þrátt fyrir að gíslunum sem teknir voru í síðasta mánuði verði sleppt. Ísrael muni halda áfram að berjast þar til „öllum markmiðum hefur verið náð“. 21.11.2023 21:06
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. 21.11.2023 20:27