Icelandair „álitlegt arðgreiðslufélag“ og metið langt yfir markaðsgengi Verðmatsgengi Icelandair samkvæmt greiningu Jakobsson Capital stendur í 3,07 krónum á hlut og er ríflega 60 prósentum hærra en markaðsgengi hlutabréfa flugfélagsins í dag. Flugfélag hefur breyst í „mjög álitlegt arðgreiðslufélag“ miðað við núverandi markaðsgengi. 12.5.2023 14:49
Útgáfan endurspeglar varkárni í tvísýnu efnahagsástandi Íslandsbanki ákvað að gefa út almenn skuldabréf í vikunni, þrátt fyrir óhagfellda þróun á skuldabréfamarkaði, í því skyni að byggja upp trú erlendra fjárfesta á bréfum íslenskra banka og til að sýna varkárni á tímum sem litast af viðvarandi markaðssveiflum. 12.5.2023 09:47
Verslunarrekstur Orkunnar seldur til Heimkaupa og Gréta María ráðin forstjóri Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures í eitt og hálft ár, mun taka við sem forstjóri Heimkaupa, samkvæmt heimildum Innherja. Hennar verkefni verður að byggja upp nýtt afl á smásölumarkaði en rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa. 11.5.2023 15:21
Sjóðirnir segja „döpur tilþrif“ koma niður á framtíðarverkefnum Landssamtök lífeyrissjóða segja að litið verði til þess hvernig stjórnvöld leysa vanda ÍL-sjóðs þegar kemur að langtímafjármögnun verkefna í framtíðinni og að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi þráfaldlega spurt fulltrúa íslenskra lífeyrissjóða um líklegar lyktir málsins. 9.5.2023 13:01
AGS segir Seðlabankanum að fylgjast vel með fasteignafélögum Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur að undanförnu lagt mat á stöðu efnahagsmála hér á landi, telur að fylgjast þurfi vel með atvinnuhúsnæðismarkaðinum og mögulega þarf að innleiða sérstök lánþegaskilyrði fyrir fasteignafélög sem eru mjög skuldsett. 9.5.2023 11:01
Vara við því að ríkið sói hálfum milljarði í gagnlaust tölvukerfi Nýtt frumvarp gerir ráð fyrir því að ríkið verji hálfum milljarði á næstu fimm árum í þróun á tölvukerfi sem heldur utan um upplýsingar um birgðastöðu lyfja í landinu. Veritas, stærsta samstæða landsins á sviði heilbrigðisþjónustu, segir hins vegar alls óljóst hvernig tölvukerfið þjónar yfirlýstu markmiði frumvarpsins um að sporna við lyfjaskorti. 8.5.2023 11:37
Þrálátur vandi Pírata Nú þegar meira en tíu ár eru liðin frá stofnun flokksins höfða þessar áherslur ekki til fólks í sama mæli og þær gerðu, og nafnið sem áður var ögrandi er nú orðið hjákátlegt. 5.5.2023 07:40
Markaðurinn tók dýfu eftir vonbrigði með uppgjör Marel og Festi Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 7,5 prósent, sem er þriðja mesta lækkun vísitölunnar frá fjármálahruni og endurspeglar vonbrigði markaðarins með uppgjör Marels og Festi. Fjárfestar óttast að uppgjörin, sem litast einkum af áhrifum hækkandi vaxta og verðbólgu, kunni að vera vísbending um það sem er í vændum hjá öðrum skráðum félögum. 4.5.2023 17:31
Hilmar og Rannveig stærstu hluthafarnir í rafmyntasjóði Visku Fasti eignarhaldsfélag, sem er í eigu Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur, er stærsti hluthafinn í fyrsta rafmyntasjóði Visku Digital Assets. 4.5.2023 09:01
Brýnna að berjast gegn kjarnorku en fyrir hagsmunum ferðaþjónustu Minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur að stjórnvöld hefðu frekar átt að beita sér gegn því að fjárfesting í kjarnorku yrði felld undir skilgreininguna á sjálfbærum fjárfestingum heldur en að krefjast undanþágu frá álagningu losunarkostnaðar í millilandaflugi. 3.5.2023 12:23
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent