Þingmenn krefjast viðbragða stjórnvalda vegna ofneyslu ópíóíða Þingmenn tveggja stjórnarandstöðuflokka ræddu á Alþingi hinn nýja ópíóíðafaraldur undir dagskrárliðnum störfum þingsins. Þingmaður Pírata segir notkun ávanabindandi lyfja á Íslandi svo mikla, eins og fram hefur komið í fréttum, að stjórnvöld verði að grípa til aðgerða strax. Þingmaður Flokks fólksins segir biðlista eftir aðgerðum einn aðal sökudólginn. 27.1.2022 11:36
3.000 Íslendingar fá ávísað mörgum ávanabindandi lyfjum á sama tíma Aldrei hafa fleiri Íslendingar leyst út jafn margar tegundir af ávanabindandi lyfjum heldur en í fyrra. Íslenskur almenningur notar sömuleiðis mun meira af tauga- og geðlyfjum en fólk annars staðar á Norðurlöndum. 25.1.2022 23:01
Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. 25.1.2022 12:00
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25.1.2022 07:00
Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. 24.1.2022 18:45
Listi með Ólöfu og Agniezsku í fararbroddi samþykktur af trúnaðarráði Trúnaðarráð Eflingar samþykkti í gærkvöld A-lista stjórnar Eflingar með Ólöfu Helgu Adolfsdóttur í formannssætinu. Agniezska Ewa Ziólkowska, starfandi formaður, verður varaformaður. Guðmundur Jónatan Baldursson vinnur nú að því að setja saman lista og ætlar í formannsslag. 14.1.2022 12:04
Tímaspursmál hvenær starfsemi fyrirtækja lamast Forstjórar tveggja stórra fyrirtækja í Reykjavík segjast þakka fyrir hvern dag þar sem starfsemin helst gangandi, en það sé bara tímaspursmál hvenær það taki enda. Nærri fimm prósent allra íbúa höfuðborgarsvæðisins eru nú annað hvort í sóttkví eða einangrun. 30.12.2021 18:30
„Kúgun almennings í Rússlandi eykst stöðugt” Hæstiréttur í Rússlandi úrskurðaði í dag að elstu og einni virtustu mannréttindaskrifstofu landsins skyldi lokað. Ástæðan er sögð hryðjuverkaógn og brot á hinum ýmsu lögum um erlend samskipti. Þýska ríkisstjórnin gagnrýnir dóminn. Þekktur blaðamaður féll til bana úr glugga íbúðar sinnar í miðborg Moskvu á sunnudag. 29.12.2021 20:30
Færri skjálftar þýða ekki minni líkur á gosi Nokkuð hefur dregið úr virkninni við Fagradalsfjall undanfarna tvo sólarhringa. Jörð er þó ekki hætt að skjálfa, en engin merki eru um gosóróa enn sem komið er. Í morgun kom einn skjálfti sem fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er enn allt undir smásjá vísindamanna, enda minnkaði virknin töluvert í aðdraganda síðasta goss. 29.12.2021 12:01
„Þetta verður mikið vesen” Prófessor í líftölfræði segir allt stefna í heljarinnar vesen þegar ómíkronafbrigðið tekur yfir. Það smitast margfalt hraðar heldur en fyrri afbrigði og ef það fengi að geysa óhindrað yrðu svo mörg smit hér að það væri ekki einu sinni hægt að greina þau öll. 21.12.2021 12:11
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent