Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bjarga þúsundum pysja í Eyjum

Lundapysjutímabilið stendur sem hæst þessa dagana í Vestmannaeyjum en björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert. Fréttastofan kíkti til Eyja og fylgdist með pysjubjörgun og eftirliti.

Eðli­legt að hafa á­hyggjur

Lögð verður áhersla á að innleiða nýtt einkunnakerfi í grunnskólum landsins hratt, að sögn forstjóra Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu. Þá eigi eftir að koma í ljós hvort einkunnagjöf með tölustöfum í stað bókstafa muni skila því sem lagt sé upp með.

„Ég elska að vera hér“

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

„Jafn­vel betur undir­búin en margur hver“

Grunnskólastarf í Grindavík hefst á nýjan leik í næstu viku og segir bæjarstjórinn Pétur G. Markan það mikinn sigur fyrir bæjarbúa að skólastarf sé að fara af stað. Hann telur að vegna mikillar áherslu á öryggi sé starfsfólk skólans jafnvel betur undirbúið en starfsfólk annarra skóla.

Djúp­fölsun nýtt til fjár­svika á gervi­fjar­fundum

Djúpfölsuð myndbönd þar sem ímynd þekktra einstaklinga er notuð verða sífellt algengari að sögn Defend Iceland. Tæknin sé orðin þannig að nánast hver sem er geti útbúið slíkt myndefni og til að koma í veg fyrir möguleg svik er fjölskyldum ráðlagt að nota lykilorð í samskiptum sín á milli.

Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat

Borgarfulltrúi Vinstrisins hefur áhyggjur af því að tekjulægra fólk neiti sér um að kaupa máltíðir hjá Reykjavíkurborg í kjölfar gjaldskrárhækkana hjá borginni. Sparnað vegna uppsagna og niðurskurðar eigi að vera hægt að nýta til að velta ekki kostnaði vegna máltíðanna á íbúa.

Sigur­geir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkra­hús

Lagarfljótssundi sundkappans Sigurgeirs Svanbergssonar er lokið en Sigurgeir þurfti að hætta vegna meiðsla og var hann fluttur á sjúkrahús í kjölfar þess sem hann kom í land. Sundið er engu að síður Íslandsmet en enginn hefur synt samfellt jafn lengi.

Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn

Grindavík stillti upp liði á Hamingjumóti Víkinga í knattspyrnu sem fram fór í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Grindavík mætir til leiks í yngri flokkum síðan sumarið 2024 og var gleðin allsráðandi þegar fagnað var í leikslok.

Sjá meira