Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Álftnesingar hafa verið öflugir á leikmannamarkaðnum í sumar og sömuleiðis fengið Baldur Þór Ragnarsson sem þjálfara. Þeir hlutu nokkuð afgerandi kosningu sem líklegasta liðið til að ná efsta sæti Bónus-deildarinnar í körfubolta í vetur. 2.10.2026 12:37
Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Arnar Gunnlaugsson og Ísak Bergmann Jóhannesson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ á Laugardalsvelli í dag, fyrir leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta. Bein útsending var á Vísi. 2.10.2026 12:13
City-menn búnir að áfrýja Forráðamenn Manchester City greindu frá því í dag að búið væri að áfrýja úrskurði óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar um að félagið hefði brotið af sér í öllum ákæruliðum tengdum brotum á fjármálareglum deildarinnar. 2.10.2026 11:14
Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla. 2.10.2026 10:32
Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Kristall Máni Ingason á við meiðsli að stríða og hefur neyðst til að draga sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir leikina tvo sem eftir eru í yfirstandandi törn í Þjóðadeildinni í fótbolta. 2.10.2026 10:05
Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Danski framherjinn Rasmus Höjlund fagnaði marki sínu gegn Portúgal í gær að hætti Cristiano Ronaldo og ýtti svo við þjálfara Portúgals, Jorge Jesus, eftir leik og gaf honum illt augnaráð. 2.10.2026 09:30
Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Eftir meiðslamartröðina sem Emelía Óskarsdóttir mátti ganga í gegnum svo snemma á sínum fótboltaferli hafa síðustu dagar verið draumi líkastir. Hún er mætt í íslenska landsliðið og skoraði í gær í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn. 2.10.2026 08:31
Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Barcelona hálfan leikinn gegn ungverska liðinu Veszprém í úrslitaleik HM félagsliða í handbolta í Egyptalandi í gær. Hans gamli samstarfsmaður reyndist maður leiksins og var valinn mikilvægastur á mótinu. Viktor og Janus Daði Smárason urðu að sætta sig við silfur. 2.10.2026 07:54
Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Heimir Hallgrímsson virtist ekki beint sáttur við fyrstu spurningu Tony O‘Donoghue hjá RTÉ, ríkismiðli Írlands, í beinni útsendingu eftir að hafa stýrt Írum til 2-2 jafnteflis við Austurríki í Dublin í Þjóðadeildinni í fótbolta í gærkvöld. 2.10.2026 07:33
Hættur við að hætta við að hætta Carlos Queiroz tilkynnti að hann væri hættur sem þjálfari Gana eftir HM í fótbolta í sumar. Hann sneri svo þeirri ákvörðun en er nú aftur hættur. 1.10.2026 15:47