Lýst sem hetju eftir að hafa hjálpað manni sem hneig niður Danski landsliðsmaðurinn Pierre Emile Höjbjerg var á vellinum og hjálpaði til þegar Christian Eriksen fór í hjartastopp á EM í sumar. Hann lenti í svipuðum aðstæðum á sunnudag. 3.11.2021 14:30
„Við erum í mjög, mjög slæmri stöðu“ Íslenska karlalandsliðið í körfubolta þarf nær örugglega að spila heimaleik á Ítalíu í febrúar og greiða Ítölum fyrir framkvæmdina. „Við erum í mjög, mjög slæmri stöðu,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ. 3.11.2021 12:30
Hörður hlaut sekt vegna mannsins sem rekinn var af Hlíðarenda Aganefnd HSÍ hefur sektað handknattleiksdeild Harðar vegna „vítaverðrar framkomu“ manns sem vísað var út úr Origo-höllinni að Hlíðarenda 15. október. 3.11.2021 11:30
Keflavík fær markvörð frá grönnunum Markvörðurinn Rúnar Gissurarson hefur leikið fyrir fjögur félög á Reykjanesi og hefur nú samið við knattspyrnudeild Keflavíkur þar sem hann verður út næstu leiktíð hið minnsta. 3.11.2021 09:45
Segir Pogba þurfa barnapössun þar til hann verði 35 ára Paul Scholes gagnrýndi nafna sinn og fyrrverandi samherja, Paul Pogba, harðlega eftir slaka frammistöðu Frakkans leik Manchester United við Atalanta á Ítalíu í gærkvöld. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 3.11.2021 08:00
Anton Sveinn í undanúrslit á EM Anton Sveinn McKee synti sig inn í undanúrslit 100 metra bringusunds á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Kazan í Rússlandi í morgun. 3.11.2021 07:51
CP3 sá þriðji gjafmildasti í sögunni Chris Paul færði nafn sitt ofar á lista í sögubókum NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt með mögnuðum seinni hálfleik í 112-100 sigri Phoenix Suns á New Orleans Pelicans. 3.11.2021 07:30
Útlit fyrir að Newcastle kaupi stjóra sem entist stutt síðast á Englandi Tveir knattspyrnustjórar koma til greina í starfið hjá nýjum eigendum Newcastle og mestar líkur eru á því að Unai Emery, fyrrverandi stjóri Arsenal, taki við liðinu. 2.11.2021 14:30
Eysteinn fengið áhugaverð símtöl: „Pínu sérstakt að vera sagt upp núna“ Þrátt fyrir að karlalið Keflavíkur í fótbolta hafi unnið 1. deild í fyrra og haldið sæti sínu í efstu deild í ár var Eysteini Húna Haukssyni, öðrum þjálfara liðsins, sagt upp í haust. Ákvörðunin kom honum á óvart en Eysteinn útilokar ekki að starfa áfram í Keflavík þó að hann hafi einnig fengið áhugaverð símtöl víða af landinu. 2.11.2021 13:31
Conte tekinn við Tottenham Antonio Conte var í hádeginu tilkynntur sem nýr knattspyrnustjóri enska félagsins Tottenham. Hann tekur við liðinu af Nuno Espírito Santo sem var rekinn. 2.11.2021 12:08