Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. 19.8.2022 08:01
Fjármálastjóri Trumps játar skattsvik Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, hefur játað að hafa svikið undan skatti. Það gerði hann vegna samkomulags við saksóknara í New York en samkomulagið felur meðal annars í sér að hann mun mögulega bera vitni í máli saksóknaranna gegn fyrirtækinu, sem heitir Trump Organization. 18.8.2022 15:58
Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi Fyrstu Starlink-gervihnettirnir frá fyrirtækinu SpaceX hafa sést á himni yfir Íslandi. Þeim var skotið á loft fyrir nokkrum dögum og farnir að setja mark sitt á næturhimininn yfir Íslandi. Gervihnöttum sem þessum mun fara hratt fjölgandi og munu þeir hafa mikil áhrif á ásýnd himinsins. 18.8.2022 15:20
Vörðust umfangsmestu tölvuárás á Eistland frá 2007 Ráðamenn í Eistlandi segjast hafa varist umfangsmestu tölvuárás á landið frá 2007. Árásin hófst í gær, skömmu eftir að tilkynnt var að sovéskir minnisvarðar yrðu fjarlægðir úr almannarými í Eistlandi. 18.8.2022 10:39
Fundu líkamsleifar ungra barna í gömlum ferðatöskum Fjölskylda á Nýja-Sjálandi fann nýverið líkamsleifar í ferðatöskum sem keyptar voru á uppboði á netinu. Nú er komið í ljós að líkamsleifarnar voru af tveimur börnum sem talin eru hafa verið fimm til tíu ára gömul. 18.8.2022 08:47
Láta byssurnar tala eftir frí Stelpurnar í Babe patrol snúa aftur úr sumarfríi í kvöld. Samhliða því má búst við auknu mannfalli á Caldera. 17.8.2022 20:30
Sextán ára munaðarlausri stúlku gert að fæða barn vegna þroskaleysis Bandarískir dómarar í Flórída komust að þeirri niðurstöðu í mánuðinum að sextán ára munaðarlaus stúlka sé ekki „nægilega þroskuð“ til að taka ákvörðun um að fara í þungunarrof. Hún verði að eignast barnið. Stúlkan hefur sagst vilja í þungunarrof og segist ekki tilbúin til að ala barn né hafa burði til þess. 17.8.2022 16:10
Komin á skotpall fyrir fyrstu tunglferðina Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) luku í dag við að flytja fyrstu eldflaug Artemis-áætlunarinnar á skotpall í Flórída. Var það gert fyrir fyrstu tunglferð áætlunarinnar en til stendur að skjóta eldflauginni á loft eftir tæpar tvær vikur. 17.8.2022 15:09
„Ég er mættur til að drepa drottninguna“ Maður sem handtekinn var við Windsor-kastala í Englandi á jóladag í fyrra, sagðist ætla að drepa Elísabetu drottningu. Maðurinn, sem heitir Jaswant Singh Chail og er tvítugur, var með grímu og vopnaður lásboga. 17.8.2022 13:57
Heilög á svört vegna skólps og úrgangs Hin heilaga Bagmati-á í Nepal hefur lengi verið talin búin þeim mætti að geta hreinsað sálir fólks. Uppruni árinnar er í Himalæjafjöllum og þykir áin einstaklega tær þar. Þegar neðar er komið er áin hins vegar orðin svört á lit og full af skólpi og sorpi. 17.8.2022 11:02