Segja það taka verulega á að sía viðbjóðinn úr ChatGPT Lágt launaðir verktakar ChatGPT segja það reyna verulega á sálartetrið að sía viðbjóðinn úr tungumálalíkani spjallþjarkans ChatGPT. Starfsfólkið þarf ítrekað að lesa lýsingar á kynferðisofbeldi, barnaníð, sjálfsvíg og rasisma, svo eitthvað sé nefnt. 25.7.2023 12:31
Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni. 25.7.2023 10:33
Ráðvilltur gagnvart uppreisn Wagner Þegar málaliðar Wagner Group lögðu undir sig borgina Rostov, þann 24. júní, og stór bílalest málaliða lagði af stað til Moskvu, var Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í losti og vissi ekki hvernig hann átti að bregðast við. Hann gaf hernum engar skipanir lengst af degi, þó hann hefði fengið viðvaranir frá öryggisstofnunum sínum með minnst tveggja daga fyrirvara. 25.7.2023 08:11
Nýsamþykkt lög draga úr áhrifum Hæstaréttar Ísraels Ísraelska þingið, Knesset, samþykkti í dag fyrstu breytingarnar á dómskerfi landsins sem miða að því að auka vald þings og framkvæmdavalds og draga úr valdi dómstólanna. 24.7.2023 15:09
Spotify hækkar verðið Nýir notendur tónlistarveitunnar Spotify munu frá deginum í dag greiða eina evru aukalega fyrir það að hlusta ekki á auglýsingar. Verð núverandi notenda hækkar eftir mánuð en forsvarsmenn Spotify tilkynntu í dag að verið væri að hækka verðið á öllum áskriftarleiðum fyrirtækisins. 24.7.2023 14:26
Viðræður við Norður-Kóreu hafnar Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sem stýra einu landamærastöð Norður- og Suður-Kóreu segjast í samskiptum við yfirvöld í norðri vegna bandarísks hermanns sem hljóp yfir landamærin í síðustu viku. Hingað til höfðu ráðamenn í Pyongyang neitað að taka upp tólið. 24.7.2023 13:38
Greiða atkvæði í skugga mikilla mótmæla Atkvæðagreiðsla um umdeilt frumvarp ríkisstjórnar Ísraels um dómstóla landsins er hafin. Mikil mótmæli hafa verið haldin vegna frumvarpsins en gagnrýnendur segja það ógna lýðræði Ísrael. 24.7.2023 11:25
Kona drepin af birni Grábjörn virðist hafa banað konu í Yellowstone þjóðgarðinum í Bandaríkjunum um helgina. Lík konunnar fannst á laugardaginn, nærri vinsælli gönguleið en atvikið er enn til rannsóknar. 24.7.2023 10:25
Fuglinn Larry látinn flakka fyrir X Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur opinberaði nýtt vörumerki Twitter, sem þegar er byrjað að birtast á internetinu. Twitter mun verða að X og vörumerkið er að breytast í samræmi við það. Fuglinn Larry, sem hefur fylgt Twitter um árabil, mun fljúga sína eigin leið. 24.7.2023 09:15
Saka Úkraínumenn enn um hryðjuverkaárásir Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur sakað Úkraínumenn um hryðjuverkaárás í Moskvu í morgun. Ráðuneytið segir að árás með tveimur drónum hafi verið stöðvuð og að þeir hafi brotlent í borginni en borgarstjóri Moskvu segir tvær byggingar hafi orðið fyrir skemmdum en engan hafi sakað. 24.7.2023 08:11