Getur ekki bjargað sér með gjaldþroti Dómari í Texas Í Bandaríkjunum hefur gert samsæriskenningasmiðinum Alex Jones ljóst að hann muni ekki komast hjá því að greiða fórnarlömbum sínum skaðabætur, ef hann lýsir yfir gjaldþroti. Með ákvörðun sinni er dómarinn að tryggja að Jones mun líklega verja ævinni í að greiða skaðabæturnar, enda hefur hann verið dæmdur til að greiða foreldrum barna sem voru myrt í Sandy Hook á árum áður tæplega einn og hálfan milljarð dala. 20.10.2023 17:11
Dómari hótar að fangelsa Trump Dómari í New York hefur hótað því að fangelsa Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna færslu um aðstoðarmann dómarans á samfélagsmiðlum. Færslan er brot á skipun dómarans um að Trump mætti ekki tjá sig opinberlega um starfsmenn dómsins. 20.10.2023 16:27
Morðhótunum rignir yfir leiðtogalausa Repúblikana Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddu í dag atkvæði gegn því að gera Jim Jordan að þingforseta. Þetta var í þriðja sinn sem þingmenn höfnuðu honum og lá í raun fyrir áður en atkvæðagreiðslan fór fram að hann yrði ekki þingforseti. 20.10.2023 15:20
Þóttist vera gína og fór svo ránshendi um tóma verslun Saksóknarar í Varsjá hafa ákært 22 ára mann fyrir rán en hann er sakaður um að hafa rænt verslun með því að þykjast vera gína. Maðurinn stóð hreyfingarlaus í glugga verslunarinnar með poka, þar til starfsmenn fóru heim án þess að átta sig á því að hann væri þar inni. 20.10.2023 10:13
Dælan fer á flakk Strákarnir í Dælunni ætla á flakk í kvöld og láta reyna á hvort þeir séu kunnugir staðháttum á Íslandi. Flakk er leikur á vef Já, þar sem spilarar giska á hvar þeir eru staddir á landinu. 19.10.2023 20:31
Hálfétinn hvítháf rak á land í Ástralíu Hræ hálfétins hvítháfs rak nýverið á land í Ástralíu. Svo virðist sem hákarlinn hafi verið rifinn í tætlur en talið er að háhyrningur hafi banað dýrinu. 19.10.2023 16:09
Játar og gæti borið vitni gegn Trump Lögmaðurinn Sydney Powell, sem tók virkan þátt í tilraunum Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020, hefur gengist við brotum sínum í Georgíu. Hún hefur gert samkomulag um að bera vitni gegn öðrum sakborningum, þeirra á meðal Trump, og var dæmd á sex ára skilorð. 19.10.2023 15:29
Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins. 19.10.2023 14:20
„Aldrei verið jafn þungt yfir Ísrael“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir Hamas, Hezbollah og bakhjarla þeirra í Íran vilja færa Mið-Austurlönd aftur til tíma stríða, þrælkunar og útrýmingar. Hann segir heiminn allan þurfa að standa með Ísrael í baráttunni við þennan „ás hins illa“. 19.10.2023 12:04
Fékk færri atkvæði í seinna skiptið en vill reyna aftur, aftur Hinn umdeildi bandaríski þingmaður Jim Jordan gerði aðra atrennu að embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær. Hann fékk þó færri atkvæði en í fyrstu atkvæðagreiðslunni og þrátt fyrir það vill hann reyna aftur. 19.10.2023 11:09