Rússar sækja hart fram í austri Undanfarna daga hafa gífurlega harðir bardagar átt sér stað í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar reynt að umkringja víggirta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og hafa þeir náð einhverjum árangri. Sókninni hefur þó fylgt gífurlegur kostnaður fyrir Rússa. 24.10.2023 23:30
Bjóða öryggi fyrir upplýsingar um gísla Ísraelski herinn varpaði í dag blöðum úr lofti yfir Gasaströndinni. Á þeim eru íbúar beðnir um upplýsingar um gísla Hamas-samtakanna. Í skiptum fengi fólk öryggi og peninga. 24.10.2023 14:15
Vilja setja alþjóðlegan auðlegðarskatt á auðjöfra Alþjóðlegur auðlegðarskattur á auðjöfra er meðal tillaga sem gætu dregið verulega úr undanskotum á heimsvísu og skilað um 250 milljörðum dala í ríkissjóði heimsins á hverju ári. Í nýrri skýrslu frá Skattastofnun Evrópusambandsins segir að auðjöfrar beiti skúffufélögum til að borga nánast enga skatta. 24.10.2023 12:12
Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn. 24.10.2023 10:56
Assassin's Creed Mirage: Andi Altaïr svífur yfir vötnum Assassin's Creed Mirage markar ákveðið skref afturábak hjá Ubisoft. Búið er að draga seglin saman og minnka leikinn, sé hann borinn saman við síðustu leiki í Assassin's Creed seríunni, sem hafa verið gífurlega stórir. 24.10.2023 08:46
Láta reyna á taugarnar í Warzone Það mun reyna á taugar strákanna í GameTíví í kvöld. Þá ætla þeir að spila Warzone með Halloween ívafi, þar sem finna má uppvakninga, drauga og kistur sem bregða manni, svo eitthvað sé nefnt. 23.10.2023 19:31
Sprengjan sögð hafa „gufað upp“ Háttsettur meðlimur Hamas-samtakanna segir að sprengjan sem samtökin segja Ísraela hafa varpað á sjúkrahús á Gassaströndinni í síðustu viku, hafa gufað upp. Þess vegna hafi engin sprengjubrot fundist. 23.10.2023 15:43
Spenna og ásiglingar í Suður-Kínahafi Yfirvöld á Filippseyjum segja áhöfn kínversks strandgæsluskips hafa siglt utan í tvö filippseysk skip í gær. Verið var að sigla filippseysku skipunum til Second Thomas-grynninga og var verið að flytja birgðir til hermanna þar. Engan sakaði. 23.10.2023 13:38
Báðu Ísraela um að bíða með innrás Ráðamenn í Bandaríkjunum báðu Ísraela um að bíða með innrás á Gasaströndina. Það er svo meiri tími fáist til að frelsa gísla Hamas-samtakanna, koma birgðum til íbúa og finna leiðir til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara. 23.10.2023 10:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Erfiður vetur í vændum hjá Úkraínumönnum Úkraínumönnum tókst ekki að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa í suðurhluta Úkraínu í sumar. Eftir fimm mánaða átök er vetur að skella á, sem mun gera frekari sóknir erfiðar. Þá eiga Rússar enn í umfangsmiklum árásum við bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu, sem hafa skilað litlum árangri og kostað Rússa mikið. 21.10.2023 09:01