Leikirnir sem beðið er eftir Á þessum myrkustu tímum ársins er fólki hollt að rísa upp úr hversdagslegri eymdinni og líta til framtíðar. Að hætta að hjakka sífellt í sama gamla, og djúpa, farinu og líta jákvæðum augum til betri tíma og nýrra tölvuleikja. Út við sjóndeildarhringinn má nefnilega sjá glitta í GTA 6 en vonum að það sé ekki hilling. 8.1.2025 09:02
Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Ráðamenn í Senegal og Tjad hafa fordæmt ummæli Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ríki Sahelsvæðisins svokallaða hafi „gleymt að þakka fyrir“ hernaðaraðstoðina gegn víga- og uppreisnarhópum undanfarin ár. Frönskum hermönnum hefur verið gert að hypja sér frá báðum ríkjunum, auk annarra ríkja á undanförnum mánuðum. 7.1.2025 16:41
Fjögur hundruð milljónir fara „dönsku leiðina“ í Úkraínu Ísland mun veita Úkraínumönnum fjögur hundruð milljón króna til hergagnaframleiðslu þar í landi. Peningarnir munu fara „dönsku leiðina“ svokölluðu, sem nokkrir af bakhjörlum Úkraínu hafa notað á undanförnum mánuðum. 7.1.2025 13:56
Þorgerður Katrín í Úkraínu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er í Úkraínu. Þangað fór hún í vinnuheimsókn og mun hún funda með ráðamönnum þar, kynna sér stöðu mála og árétta stuðning Íslands við varnarbaráttu landsins gegn innrás Rússa. 7.1.2025 11:00
Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Lögmenn Donalds Trump, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar, hafa farið fram á að Jack Smith, sérstökum rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, verði meinað að birta skýrslu um rannsókn hans á Trump. Krefjast þeir þess að Merrick Garland, dómsmálaráðherra, reki Smith og birti ekki skýrslu um skjalamálið svokallaða opinberlega. 7.1.2025 09:47
Byrjuðu strax að endurskrifa sögu árásarinnar Bandarískir þingmenn munu í dag staðfesta formlega úrslit forsetakosninganna í nóvember, sem Donald Trump vann. Það gera þeir í skugga atburða þegar þetta stóð síðast til þann 6. janúar árið 2021, þegar stuðningsmenn Trumps ruddu sér leið inn í þinghúsið og reyndu að koma í veg fyrir staðfestinguna. 6.1.2025 13:29
Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk Úkraínumenn eru sagðir hafa náð tökum á að minnsta kosti þremur þorpum í Kúrskhéraði, eftir skyndisókn sem hófst í gær. Samhliða henni munu Rússar þó hafa gert sína eigin stórsókn gegn Úkraínumönnum annarsstaðar í héraðinu og þykir það benda til þess að Rússar hafi átt von á sókn Úkraínumanna. 6.1.2025 10:11
Snúin aftur á Instagram og kynnir nýjan þátt á Netflix Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, og Netflix hafa opinberað nýja þætti hennar sem frumsýndir verða í mánuðinum. Af því tilefni sneri hún aftur á samfélagsmiðla á nýrri síðu á Instagram. 2.1.2025 23:56
Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Níu af hverjum tíu bílum sem keyptir voru nýir í Noregi í fyrra voru rafmagnsbílar. Markmið Norðmanna er að selja eingöngu rafmagnsbíla á árinu sem er að hefjast. Formaður sambands rafmagnsbílaeigenda segir Noreg verða fyrsta ríki heimsins til að ná því markmiði að nýskrá eingöngu rafmagnsbíla. 2.1.2025 23:31
„Ekki gera lítið úr þriðja formanninum“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, að gera ekki lítið úr Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og félagsmálaráðherra. Það gerði Kristrún í Kryddsíldinni á gamlársdag eftir að Sigmundur gagnrýndi Ingu og sagði hana þurfa að tala af ábyrgð. 2.1.2025 22:04