Telur að nýju leikmenn Vals verði bestu leikmenn Bestu deildarinnar Farið var yfir hvaða fimm leikmenn ættu að vera bestir í Bestu deildinni í síðasta þætti af Lengjubikarsmörkunum. Albert Brynjar Ingason, framherji Fylkis í Lengjudeildinni, setti listann saman og athygli vakti að tveir af nýjum leikmönnum Vals voru þar efstir á blaði. 7.3.2022 23:30
Nottingham Forest mætir Liverpool í átta liða úrslitum FA bikarsins Nottingham Forest varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða FA bikarsins á Englandi er liðið vann 2-1 sigur á Huddersfield Town. Bæði liðin leika í B-deildinni. 7.3.2022 23:01
Valur þurfti að bíða lengi eftir mörkunum gegn Aftureldingu Íslandsmeistarar Vals unnu 2-0 sigur á nýliðum Aftureldingar er liðin mættust í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu í kvöld. 7.3.2022 22:30
Sveiflukennt gengi Tottenham heldur áfram: Völtuðu yfir Everton Það er fátt erfiðara en að spá fyrir um hvernig leikir Tottenham Hotspur fara. Liðið vann 5-0 sigur á Everton í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 7.3.2022 22:05
FIFA opnar sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn í Rússlandi og Úkraínu Vegna innrásar Rússa í Úkraínu mun Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, opna sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn sem spila í Rússlandi og Úkraínu. Það sama verður gert fyrir þjálfara og aðra sem starfa hjá félögunum. 7.3.2022 21:01
Frá Vestmannaeyjum til Vestfjarða: „Ekki eins og ég sé að fara til Úsbekistan“ „Langur og ekki langur, hvað er langt og hvað er stutt. Þetta voru einhverjir dagar, þetta var ekkert sem ég sagði já við einn tveir og bingó,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, nýráðinn þjálfari Lengjudeildarliðs Vestra, í viðtali í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld. 7.3.2022 20:30
Mikael skoraði er AGF glutraði niður forystu undir lok leiks Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson skoraði síðara marka AGF í 2-3 tapi liðsins gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Mikael lék allan leikinn og þá lék Jón Dagur Þorsteinsson 81 mínútu í liði AGF. 7.3.2022 20:00
Lögmál leiksins: Slagsmál í leik Knicks og Suns ásamt hræinu honum Kemba Walker „Þetta var mjög sárt, eins og allur þessi vetur er búinn að vera. Eins og var gaman í vor, í alvöru talað þið trúið ekki hvað var gaman í vor,“ sagði Hörður Unnsteinsson, einn af sérfræðingunum í Lögmál leiksins og einn harðasti New York Knicks aðdáandi Íslands. 7.3.2022 19:46
Mbappé meiddist á æfingu: Gæti misst af stórleiknum gegn Real Kylian Mbappé meiddist á æfingu París Saint-Germain í dag. Alls óvíst er hvort hann nái síðari leik liðsins gegn Real Madríd í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. PSG leiðir 1-0 í einvíginu eftir að Mbappé skoraði sigurmarkið í fyrri leik liðanna. 7.3.2022 19:00
Duplantis bætti eigið heimsmet Hinn 22 ára gamli Armand Duplantis bætti í dag heimsmetið í stangarstökki þegar hann stökk 6.19 metra. Hann átti gamla metið og var því að bæta eigið met. 7.3.2022 18:04