Dembele stal senunni frá Mbappé á móti varaliði Norðmanna Frakkar tryggðu sér toppsætið í I-riðli á heimsmeistaramótinu með 4-1 sigri á Norðmönnum í uppgjöri tveggja þjóða með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum. Senegal náði þriðja sætinu og bætti markatölu sína með 5-0 sigri á Írak á sama tíma. 26.6.2026 21:00
Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Úkraínska hnefaleikastjarnan Oleksandr Usyk hefur ákveðið að afsala sér öllum heimsmeistaratitlunum sem hann hefur tryggt sér hjá nokkrum mismunandi samböndum. Á sama tíma hafnar hann því samt að ferlinum sé alfarið lokið. 26.6.2026 20:02
Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Guðmundur Andri Tryggvason hefur yfirgefið herbúðir KR og er genginn í raðir FH. 26.6.2026 19:44
AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Ítalska stórliðið AC Milan hefur samþykkt að borga metfé fyrir portúgalska framherjann Goncalo Ramos sem félagið kaupir frá Paris Saint-Germain. 26.6.2026 19:30
Búið að slá markametið á HM í fótbolta Þótt riðlakeppni heimsmeistaramótsins klárist ekki fyrr en aðfaranótt sunnudags þá er þegar búið að slá markamet HM. 26.6.2026 18:00
Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Norski landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken hefur tekið stóra ákvörðun fyrir leik liðsins á móti Frakklandi í kvöld. Þetta er úrslitaleikur um sigur í riðlinum en hann ætlar að spara sínar tvær stærstu stjörnur og í raun hvíla næstum því allt byrjunarliðið. 26.6.2026 17:01
Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Leið portúgalska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta gæti orðið mjög ólík eftir úrslitum leiksins gegn Kólumbíu á síðasta leikdegi. 25.6.2026 14:01
Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Peter Öqvist er fyrrverandi þjálfari karlalandsliðs Íslands í körfubolta og á mikinn þátt í uppgangi íslenska landsliðsins á síðustu árum. Hann hefur líka fylgst vel með íslenska liðinu eftir að hann hætti og Craig Pedersen tók við. 25.6.2026 13:00
Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenska landsliðsgoðsögnin Hólmfríður Magnúsdóttir stóð fyrir söfnun fyrir dóttur fyrrum liðsfélaga sinna og hefur nú sagt frá uppskerunni. 25.6.2026 12:30
Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Assim Madibo, miðjumaður Katar, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann fyrir tæklingu sína á Ismael Kone frá Kanada í leik þjóðanna á heimsmeistaramótinu. 25.6.2026 12:02