Saka Google um að vera einokunarhringur Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar að stefna Google í dag fyrir meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu í netleit sem hamli samkeppni og skaði neytendur. 20.10.2020 13:35
Beraði sig fyrir vinnufélögum á fjarfundi Bandaríska blaðið New Yorker hefur vikið Jeffrey Toobin, rithöfundi og greinahöfundi, frá störfum eftir að hann beraði sig fyrir framan vinnufélaga á fjarfundi í síðustu viku. 20.10.2020 13:01
Rússar neita ásökunum um tölvuárásir á Ólympíuleika Sendifulltrúar Rússlands í Bandaríkjunum hafna ásökunum bandarískra og breskra stjórnvalda um að rússneska leyniþjónustan hafi staðið að fjölda tölvuárása, þar á meðal til þess að setja Ólympíuleikana í Tókýó úr skorðum. 20.10.2020 09:01
Kínversk tæknifyrirtæki gerð útlæg í Svíþjóð Sænsk fjarskiptayfirvöld ætla ekki að leyfa búnað frá kínversku tæknifyrirtækjunum Huawei og ZTE við uppbyggingu á 5G-farneti og vísa í áhættumat hersins og leyniþjónustunnar. Útboð á tíðnisviðum vegna 5G fer fram í Svíþjóð í næsta mánuði. 20.10.2020 08:29
Opna Dýrafjarðargöng um helgina Dýrafjarðargöng verða opnuð á sunnudag, rúmlega þremur árum eftir að framkvæmdir hófust. Með göngunum styttist Vestfjarðavegur um 27,4 kílómetra. Opnunin verður með óhefðbundnu sniði vegna kórónuveirufaraldursins. 19.10.2020 16:54
Komu í veg fyrir 10.000 manna brúðkaup í New York Heilbrigðisyfirvöld í New York komu í veg fyrir að samfélag strangtrúaðra gyðinga í Brooklyn héldi brúðkaupsveislu fyrir allt að 10.000 manns í dag. Fimmtíu manns samkomutakmarkanir eru í gildi í borginni vegna kórónuveirufaraldursins en strangtrúaðir gyðingar hafa amast gegn reglunum. 19.10.2020 16:27
Talsvert magn olíu í hreinsistöð í Klettagörðum Olía hefur borist í töluverðu magni inn í hreinsistöð Veitna í Klettagörðum í Reykjavík. Erfitt er sagt að rekja uppruna olíumengunarinnar en hreinsistöðin tekur við fráveituvatni frá stórum hluta höfuðborgarsvæðisins. 19.10.2020 15:30
Órói á ritstjórn götublaðs eftir umfjöllun um son Biden Starfsmenn bandaríska götublaðsins New York Post eru sumir sagðir fullir efasemda um trúverðugleika gagna og heimildarmanna umfjöllunar þess um son Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í síðustu viku. 19.10.2020 14:14
Vilja taka 5G-samsæriskenningar fastari tökum Fimmtán aðildarríki Evrópusambandsins hvetja til þess að sambandið móti áætlun til þess að takast á við upplýsingafals um 5G-væðingu fjarskiptakerfa. Annars telja þau að efnahagsbata og þróun fjarskiptakerfi verði stefnt í voða. 19.10.2020 13:32
Húsleit hjá meintum íslömskum öfgamönnum eftir hrottalegt morð Franska lögreglan gerði húsleit á heimilum tuga grunaðra íslamskra öfgamanna í morgun í kjölfar hrottalegs morðs á kennara í úthverfi Parísar á föstudag. Tugir samtaka múslima eru einnig sagðir til rannsóknar. 19.10.2020 12:46