Pólitíkin gefandi, skemmtileg, skemmandi og ljót Karen Elísabet Halldórsdóttir, sem leiddi Miðflokkinn í Kópavogi í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, kveður pólitíkina í Kópavogi. Hún segist nú frjáls. 15.5.2022 11:01
Píratar kæra Framsókn fyrir áróður á kjörstað Risastórar kosningaauglýsingar frá Framsóknarflokki við kjörstað stangast gróflega á við lög að mati Indriða Inga Stefánssonar verkefnisstjóra kosningaeftirlits Pírata. 13.5.2022 15:53
Borgarstjóri segir önnur sveitarfélög hafa brugðist í húsnæðiskrísunni Fyrirliggjandi er að helstu mál fyrir sveitarstjórnarkosningar á morgun hvað Reykjavíkurborg varðar er tvö: Húsnæðismál og samgöngumál. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ábyrgð annarra sveitarfélaga mikla því þau hafi látið Reykjavík draga þann vagn eina að byggja fyrir hina tekjulægstu. 13.5.2022 14:16
Blóðmerabóndi gefst upp á barningnum Sigríður Jónsdóttir bóndi í Arnarholti hefur lýst því yfir að hún ætli að hætta blóðmerahaldi. Hún sakar fyrirtækið Ísteka efh. um fantaskap í samningum. 13.5.2022 10:59
Bitist um borgina í hörðum kappræðum Oddvitar níu framboða af ellefu í Reykjavík mættust í kappræðum á Stöð 2 í gærkvöldi og reyndu hvað þeir gátu að sannfæra áhorfendur um að þau væru einmitt rétta fólkið til að stjórna borginni. 12.5.2022 15:01
N4 slaufar kosningaumfjöllun eftir að Kattaframboð neitar að borga fyrir þátttöku Til stóð að akureyrska sjónvarpsstöðin N4 yrði með sérstakan kosningaþátt eða þætti en babb kom í bátinn þegar Snorri Ásmundsson og Kattaframboðið gerðu athugasemd við að borga þyrfti fyrir þátttöku. Nú hefur alfarið verið fallið frá þeim fyrirætlunum stöðvarinnar að vera með kosningaumfjöllunina. 11.5.2022 17:14
Neitar að láta Costco hafa sig enn og áfram að fífli Þórður Már Jónsson lögmaður segir að undanfarið hafi runnið á sig tvær grímur hvað varðar að versla í Costco. Hann segir að nú sé svo komið að honum líði sem verið sé að hafa sig að fífli. 11.5.2022 13:52
„Leiðinlegt ef gamall bæjarstjóri er mættur til þess eins að fella mig“ Hafnfirðingar sviku ekki í kappræðum um bæjarstjórnarmálin í kappræðum á Vísi í gær og buðu uppá hressileg skoðanaskipti. Átta framboð keppast um hituna og flugu skeytin milli oddvita. 11.5.2022 11:43
Páll Vilhjálmsson fór bónleiður til búðar frá umboðsmanni Hinn umdeildi Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og bloggari, sendi umboðsmanni Alþingis erindi þar sem hann taldi fyrirliggjandi að Kristinn Þorsteinsson skólameistari hafi reist tjáningarfrelsi sínu skorður. Umboðsmaður tekur ekki undir það með Páli. 11.5.2022 09:34
Kapp í frambjóðendum í Kópavogi Fulltrúar meirihlutans í Kópavogi voru meðal annars sakaðir um valdhroka sem sagður er óhjákvæmilegur fylgifiskur langrar valdasetu. Það var fjör í kosningakappræðum Vísis þar sem málefni Kópavogs voru undir. 9.5.2022 17:00
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent