Serena Williams hrósar Meghan Markle fyrir viðtalið Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, á hauk í horni í tennisstjörnunni Serenu Williams. 8.3.2021 13:00
Fékk skilaboð frá Tiger fyrir lokahringinn og kláraði dæmið Bryson DeChambeu hrósaði sigri á Arnold Palmer Invitational mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi eftir mikla baráttu við Lee Westwood. 8.3.2021 11:31
Kyssti næstum því hringinn þegar hann vann troðslukeppnina Anfernee Simons, leikmaður Portland Trail Blazers, sýndi mögnuð tilþrif þegar hann vann troðslukeppnina sem fór fram í hálfleik í stjörnuleik NBA-deildarinnar í Atlanta í nótt. 8.3.2021 10:01
Segir engar líkur á því að Gerrard yfirgefi Rangers og taki við Liverpool á næstunni Engar líkur eru á því að Steven Gerrard yfirgefi Rangers á næstunni og taki við Liverpool. Þetta segir Dave King, fyrrverandi formaður Rangers sem varð skoskur meistari um helgina. 8.3.2021 08:31
Keane sakaði Jesus um heimsku Roy Keane og Greame Souness drógu hvergi af sér þegar þeir gagnrýndu Gabriel Jesus fyrir vítaspyrnuna sem hann fékk á sig í upphafi leiks Manchester-liðanna, City og United, í ensku úrvalsdeildinni í gær. 8.3.2021 08:00
Antetokounmpo valinn bestur í stjörnuleiknum og sló 53 ára gamalt met Lið LeBrons James vann tuttugu stiga sigur á liði Kevins Durant, 170-150, í stjörnuleik NBA-deildarinnar í Atlanta í nótt. 8.3.2021 07:31
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 23-30 | Langþráður Valssigur Eftir fimm leiki í röð án sigurs vann Valur Stjörnuna, 23-30, í Mýrinni í Olís-deild kvenna í dag. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Valskonur sterkari í þeim seinni. 6.3.2021 18:31
Lovísa: Bara jess, áfram Anna! Hljóðið var gott í Lovísu Thompson eftir sigur Vals á Stjörnunni í dag, 23-30. Lovísa skoraði tíu mörk í leiknum. 6.3.2021 18:28
Gefur nýjum þjálfara Breiðabliks ellefu af tíu mögulegum í einkunn Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München, hefur litlar áhyggjur af sínum gömlu liðsfélögum í Breiðabliki í sumar. 6.3.2021 11:00
Heyrði fyrst af áhuga Bayern eftir stærðfræðipróf í háskólanum Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fékk sannkallaða draumabyrjun með þýska stórliðinu Bayern München í fyrradag. Hún kann afar vel við sig hjá liðinu og er búin að koma sér vel fyrir í München þótt hún viðurkenni að það hafi verið krefjandi að flytja að heiman og til stórborgarinnar. 6.3.2021 10:00