Nýtur stuðnings stóru sjóðanna en óvíst með afstöðu Brimgarða Hópur fjárfesta sem ræður yfir talsverðum meirihluta hlutafjár í Eik, einkum lífeyrissjóðir, hefur í markaðsþreifingum sem hófust fyrr í vikunni tekið jákvætt í yfirtökutilboð Regins en íslensku fasteignafélögin hafa átt undir högg að sækja á hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið. Langsamlega stærsti hluthafi Eikar er fjárfestingafélagið Brimgarðar, með rúmlega fjórðungshlut, en með sameinuðu félagi er meðal annars horft til þess að ná fram hagstæðari fjármögnun og meira floti á bréfum þess. 8.6.2023 13:28
Seðlabankastjóri: Verðbólgan gæti hjaðnað hraðar en spár gera ráð fyrir Vísbendingar eru um að verðbólgan kunni að ganga hraðar niður en hagspár gera ráð fyrir, að sögn seðlabankastjóra, og vísar þar meðal annars til þess að hrávöruverðshækkanir erlendis eru að koma til baka auk þess sem væntingar eru um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Hann segir til mikils að vinna að stigin verði frekari trúverðug skref í ríkisfjármálum til að ná niður verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði sem muni þá um leið lækka ávöxtunarkröfu langra ríkisbréfa. 7.6.2023 16:46
Brýnir fyrir bönkum að huga „tímanlega“ að þyngri greiðslubyrði lántaka Mikilvægt er að bankarnir grípi tímanlega til aðgerða til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika hjá heimilum og fyrirtækjum vegna þyngri greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, sem telur viðnámsþrótt fjármálakerfisins vera góðan. 7.6.2023 09:03
Hagnaður Hvals minnkaði verulega í fyrra og var um 900 milljónir Hagnaður Hvals, sem er stýrt af Kristjáni Loftssyni og á meðal annars stórar hlutabréfastöður í Arion banka og Alvotech, dróst saman um nærri 75 prósent á síðasta fjárhagsári hlutafélagsins samtímis erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum og nam rúmlega 890 milljónum króna. Félagið hóf hvalveiðar á ný um mitt árið í fyrra og átti frystar hvalaafurðir sem voru metnar á um 2,6 milljarða undir lok ársins. 6.6.2023 09:04
Hvalur keypti fimm prósent af heildarstærð útboðs Hampiðjunnar Fjárfestingafélagið Hvalur, langsamlega stærsti hluthafi Hampiðjunnar, keypti nærri því fimm prósent af heildarstærð hlutafjárútboðs félagsins sem lauk síðastliðinn föstudag í tengslum við skráningu á Aðalmarkað í Kauphöllinni. Þannig fékk Hvalur úthlutað rúmlega 4,2 milljónum hluta að nafnvirði í útboðinu og nemur kaupverð bréfanna samtals nærri 550 milljónum króna. 5.6.2023 10:52
Hagnaður LOGOS yfir 400 milljónir og stóð nánast í stað milli ára Lögmannsstofan LOGOS skilaði hagnaði upp á um 418 milljónir króna eftir skatt á árinu 2022 og dróst hann saman um liðlega þrjú prósent frá fyrra ári. Hagnaður á hvern eigenda LOGOS nam að meðaltali tæplega 25 milljónum króna á liðnu ári. 5.6.2023 09:05
Lífeyrissjóðir mættu huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna Þrátt fyrir að vaxtakjör íslensku bankanna á nýlegum erlendum útgáfum hafi verið ein þau hæstu frá fjármálahruninu 2008 þá er það „rétt stefna“ að halda þeim mörkuðum opnum á tímum þegar aðstæður eru krefjandi, að sögn seðlabankastjóra. Það væri góð þróun ef íslensku bankarnir gætu farið að fjármagna sig innanlands til lengri tíma á nafnvöxtum en þá þyrftu lífeyrissjóðirnir að fara huga að „fleiri hólfum“ á skuldahlið bankanna. 1.6.2023 13:07
Oculis klárar hlutafjárútboð upp á nærri sex milljarða Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af tveimur íslenskum prófessorum á Íslandi fyrir tuttugu árum, kláraði í gærkvöldi hlutafjárútboð upp á samanlagt 40,25 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5,7 milljarða króna. Hið nýja hlutafé var selt á rúmlega fjögurra prósenta lægra gengi, eða 11,5 dalir á hlut, en nam síðasta dagslokagengi félagsins fyrir útboðið. 1.6.2023 08:28
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir nærri fjóra milljarða frá áramótum Almennir innlendir verðbréfasjóðir hafa horft upp á nettó útflæði í hverjum mánuði frá áramótum samhliða áframhaldandi erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Fjárfestar hafa þannig minnkað stöðu sína í hlutabréfasjóðum um 3,6 milljarða á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem kemur til viðbótar við útflæði úr slíkum sjóðum upp á samtals átta milljarða á öllu árinu 2022. 31.5.2023 08:55
Oculis að sækja um átta milljarða króna í nýtt hlutafé Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað fyrir tuttugu árum af tveimur íslenskum prófessorum við Háskóla Íslands og Landspítalann, hefur ákveðið að efna til hlutafjárútboðs sem er beint að innlendum og erlendum fjárfestum en ætlunin er að sækja samtals um átta milljarða króna miðað við núverandi markaðsgengi. Hlutabréfaverð Oculis hefur hækkað um 20 prósent frá því að það var skráð í kauphöll Nasdaq í New York fyrr á árinu en niðurstöður nýlegra verðmata gefa til kynna að félagið sé verulega undirverðlagt á markaði. 30.5.2023 13:37