Rússar herða fjandsamlegar aðgerðir gegn NATO-ríkjum Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa hafa hert á skemmdarverkum og árásum á innviði aðildarríkja bandalagsins. Atlantshafsbandalagið bregðist við með því að auka varnir sínar og styrkja hernaðarmátt Úkraínu. Reiknað er með að Úkraínumenn fái langþráðar F16 herþotur í sumar. 10.7.2024 20:29
Íslendingar styrkja varnir kvenna í Úkraínu Utanríkisráðherra greindi frá sjötíu og fimm milljón króna framlagi Íslands á leiðtogafundi NATO í gærkvöldi, til að efla búnað kvenna á víglínunni í varnarbaráttu Úkraínu gegn innrás Rússa. Konur gegndu mikilvægu hlutverki í stríðinu og áríðandi að hlusta eftir röddum þeirra á þeirra eigin forsendum. 10.7.2024 12:32
Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma. 8.7.2024 19:20
Hillir loks undir framkvæmdir í Vesturbugt eftir sjö ára töf Félagið M3 fasteignaþróun var með hærra tilboð af tveimur í uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn sem opnuð voru á föstudag. Reykjavíkurborg rifti samningum við fyrri lóðarhafa sem sátu aðgerðarlausir í sjö ár eftir að hafa fengið lóðunum úthlutað til sín. 8.7.2024 12:58
Tuttugu stéttarfélög skrifuðu undir kjarasamninga Samninganefnd sveitarfélaga skrifaði í gær undir nýja kjarasamninga við tuttugu stéttarfélög, annars vegar innan Starfsgreinasambands Íslands og hins vegar við þrjú stéttarfélög innan Alþýðusambandisns 4.7.2024 16:42
Meirihluti þjóðarinnar styður aðildarviðræður við ESB Meirihluti þjóðarinnar vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun. 4.7.2024 12:26
Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Verkefnastjóri á höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar segir jarðgangagerð undir Miklubraut með tengingu við Kringlumýrarbraut hafa ýmsa kosti fram yfir stokk. Gangagerð myndi raska umferð minna á framkvæmdatíma og bjóða upp á meira pláss til borgarþróunar. 3.7.2024 20:55
Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. 3.7.2024 11:53
„Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir nöturlegt ef réttindi barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna grípi ekki fatlaðan ellefu ára dreng sem hefur verið vísað frá landinu. Brottvísun drengsins hefur verið frestað fram yfir verslunarmannahelgi og lögmaður fjölskyldu hans hefur óskað eftir endurupptöku á máli hans. 2.7.2024 15:11
Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur. 2.7.2024 13:04