Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir. 10.5.2026 08:58
Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið. 10.5.2026 08:06
Skýjað með köflum en styttir svo upp Í dag heldur áfram að rigna og er spáð suðlægri átt víðs vegar um landið en það ætti að hanga þurrt á austanverðu landinu fram á kvöld. Á morgun bætir svo í vindinn en síðdegis beinist til landsins þurrara loft og einhverjar glufur fara að sjást í skýjahuluna eftir hádegi. 10.5.2026 07:27
Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Halldór Áskell Stefánsson gerði sér lítið fyrir og labbaði heim úr vinnunni í gær. Það væri líklega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Halldór vinnur í Reykjavík en býr á Selfossi. Ferðalagið tók rúmar þrettán klukkustundir, reyndist mikil áskorun og á tímabili þurfti hann að minna sig á að setja annan fótinn fram fyrir hinn. 9.5.2026 14:46
Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Lögreglan í Vestmannaeyjum naut í gær aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við handtöku manns sem var vopnaður eggvopni. Hann var fluttur með þyrlu á meginlandið um klukkan eitt í nótt en staðarmiðlar í Eyjum herma að hann glími við andleg veikindi. 9.5.2026 09:40
Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða. 9.5.2026 08:52
Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara. 9.5.2026 07:50
Spáir mildu áfram en útlit fyrir rigningu Búast má við rigningu í dag á Suður- og Vesturlandi en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti nær ekki tíu stigum og verður á bilinu 3 til 8 stig en veðurfræðingur spáir næturfrosti norðaustantil. Hægur vindur verður víðast hvar á landinu en á morgun leggst svo þoka yfir suðvestanvert landið með tilheyrandi rigningu og súld. 9.5.2026 07:23
Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum. 7.5.2026 23:59
„Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Flókið gæti reynst að mynda meirihluta í Reykjavík miðað við nýjustu kosningaspá Vísis. Það megi búast því að fylgi flokkanna verði á fleygiferð fram að kosningum og tölur eftir viku gætu verið gjörólíkar því sem fram kemur í könnunum í dag. 7.5.2026 22:06