Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl. 22.10.2026 18:35
Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð. 22.10.2026 17:29
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Appelsínugul viðvörun tók gildi klukkan 16:00 í Breiðafirði og samkvæmt spám verður hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi. Vísir ræddi við fólk á svæðinu og spurðist fyrir um hvernig aðstæður væru og hvort þau hefðu undirbúið sig á einhvern hátt fyrir storminn en viðvörunin fellur úr gildi í kvöld. 17.10.2026 18:20
Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gær að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þeim hafði þá borist tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. 17.10.2026 14:15
Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Hin níu ára Ylfa Björk Einarsdóttir fékk í vikunni svar við flöskuskeyti sem hún skrifaði og sleppti í sjóinn í sumar á Vestfjörðum. Það sem vakti mesta undrun hennar var að sú sem fann skeytið er staðsett í Dubrovnik í Króatíu og hefur skeytið því ferðast gríðarlega langa leið á einungis tveimur mánuðum. 17.10.2026 13:51
„Þvílík gleði með þennan tíma“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, greindi frá þeim tíðindum á dögunum að hann væri nú í hópi þeirra örfáu Íslendinga sem hafa leyst Rúbikskubb, einnig kallaður töfrateningur, blindandi í keppni. 17.10.2026 11:21
Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Vegagerðin vekur athygli á því að vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar á norðanverðu Snæfellsnesi upp úr hádegi gæti komið til lokana á vegum með stuttum fyrirvara. Búast má við hviðum allt að 45 metrum á sekúndu á svæðinu. 17.10.2026 10:13
Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík. 17.10.2026 09:45
Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Tvö fórnarlamba árásarmanns sem skaut þrjú börn og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í vikunni hafa verið nafngreind. Árásarmaðurinn var hinn sextán ára gamli Griffin J. John II og nú hefur verið greint frá því að hann sé fyrrverandi nemandi í skólanum sem er fyrir börn frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk sem eru með sérþarfir . 17.10.2026 00:05
Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar. 16.10.2026 21:43