Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn

Tvö fórnarlamba árásarmanns sem skaut þrjú börn og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í vikunni hafa verið nafngreind. Árásarmaðurinn var hinn sextán ára gamli Griffin J. John II og nú hefur verið greint frá því að hann sé fyrrverandi nemandi í skólanum sem er fyrir börn frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk sem eru með sérþarfir . 

Ást­vinir þeirra sem létust í flug­slysinu bíða enn

Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta ​Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar.

„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“

Moskítóflugan virðist ekki láta íslenska vetrarfrostið á sig fá en skordýraáhugamaður í Kjósinni fann flugu í garðinum hjá sér í vikunni. Hann hafði í sumar leitað að lirfum en án árangurs og átt ekki von á því að finna fleiri flugur. Nú bíður hann spenntur eftir því að sjá hvort fleiri stingi upp kollinum.

Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn

Á þriðja tug kvenna kusu að fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi á árunum 2022 til 2025. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands telur aukinn fjölda mæðra sem kjósa þessa leið vera tilkominn vegna áhrifa frá Bandaríkjunum þar sem konur þurfa að borga fyrir aðkomu ljósmæðra. Þá hafi hún áhyggjur af ljósmæðrum sem séu settar inn í slíkar aðstæður of seint.

Hand­tekinn fyrir að ausa fúk­yrðum yfir hóp fólks

Aðstoðar lögreglu var óskað vegna manns sem var með ógnandi tilburði neðst á Skólavörðustíg í gær en hann var að endingu handtekinn. Þá mátti á myndbandi heyra til hans öskra á fólk sem virtist vera að taka hann upp á símana sína.

Tals­maður Trumps rekinn eftir brösug­lega byrjun

Katie Zacharia entist ekki lengi í starfi upplýsingafulltrúa Hvíta hússins en hún hefur verið leyst frá störfum aðeins örfáum dögum eftir að hún steig í pontu á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni.

„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans gefur heldur lítið fyrir ummæli nöfnu sinnar Sigríðar Daggar Auðunsdóttur formanns Blaðamannafélags Íslands í nýlegu viðtali þar sem hún minntist á blaðið. Í innsendri grein sem ber fyrirsögnina „Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei“ segist Sigríður Dagný ekki átta sig á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti þegar hún raði eigin félagsmönnum í flokka. 

Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og telur mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum.

RJ Mitte er látinn

Bandaríski leikarinn RJ Mitte, sem er þekktastur fyrir leik sinn í þáttunum Breaking Bad, er látinn en hann var aðeins 34 ára þegar hann lést. Hann lætur eftir sig unnustu en biðlað hefur verið til fólks að gefa ástvinum hans næði til að syrgja í friði.

Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju

Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi, en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði.

Sjá meira