Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Segir upp­haf hvalvertíðar vera gleði­tíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.

Lög­reglan þakkar öllum sem komu að verk­efninu

Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi.

Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn

Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði.

Öku­maður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag, mánudaginn 22. júní, afskipti af manni sem ók um á vespu en hann reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, með fíkniefni á sér, án ökuréttinda og vespan, sem reyndist stolin, var ljóslaus og án skráningarmerkja.

Gull og gim­steinar leynast víða

Höllu Hrund Logadóttur kannast eflaust flestir Íslendingar við en hún er ein þeirra sem buðu sig fram til forseta vorið 2024 og var í þriðja sæti frambjóðenda þegar upp var staðið. Hún sinnir nú þingmennsku fyrir Framsóknarflokkin en er einnig fyrrverandi Orkumálastjóri, fyrst kvenna, og aðjúnkt við Harvard-háskólann.

Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitt­hvað fer illa þá bara fer það illa“

Hallór Kristinn Harðarsonar, betur þekktur sem Dóri K, hefur slegist í hóp útvarpsmanna FM957 og mun hann fara í fyrsta sinn í loftið klukkan 16:00 í dag, laugardaginn 20. júní, beint frá Akureyri. Það þekkja hann eflaust flestir Akureyringar en Dóri er tónlistarmaður, handboltamaður, viðburðarhaldari, athafnamaður og svo mætti lengi telja.

Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni

Bandaríska leikkonan Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni ásamt bandaríska leikaranum, kvikmyndaframleiðandanum og skartgripahönnuðinum Adam Schulman. 

Bjórinn nefndur eftir lagi hljóm­sveitarinnar Kaleo

Borg Brugghús og Kaleo hafa snúið bökum saman og hefur nú verið gefinn út samstarfsbjórinn, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en síðar í sumar.

Lauf­ey Lín er mætt til Springfield

Laufey Lín, íslensku tónlistarstórstjörnunni, hefur á síðastliðnum mánuðum brugðið fyrir í tölvuleiknum Fortnite, á rauða dregli tískuhátíðarinnar Met Gala og í leiknum God of War. Þá var hún einnig valin söngkona ársins og var sigursælust á íslensku tónlistarverðlaununum en nú hefur hún tekið sig til og birst í nýjasta þætti The Simpsons.

Sjá meira