Guðný Helga tekur við af Haraldi Stjórn Skaga hefur samið við Harald I. Þórðarson, forstjóra félagsins, um starfslok en hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum. 27.10.2026 19:30
Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg Lögreglan á stöð eitt fékk tilkynningu í dag vegna vinnuslyss í hverfi 102 þar sem kona féll úr stiga og hlaut höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til athugunar en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um líðan hennar að svo stöddu. 27.10.2026 18:12
„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. 27.10.2026 18:06
Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax. Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur, nánar tiltekið plaststykki, fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með Kanilsnúðakökunni. 27.10.2026 15:27
Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Bandaríski áhrifavaldurinn Braden Eric Peters, sem er betur þekktur undir nafninu Clavicular, hefur neitað sök vegna ákæru um refsiverð brot, þar á meðal nauðgun. Er hann helst þekktur fyrir að breiða út hugmyndina um að „looksmaxx-a“ sem gengur út á að líta sem best út sama hvað og eftir öllum mögulegum leiðum, jafnvel með skaðlegum aðferðum. 22.10.2026 23:46
Búið að opna Hellisheiði á ný Hellisheiði var lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss í gær og í nótt. Slysið átti sér stað á tíunda tímanum og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 22.10.2026 22:33
Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021. 22.10.2026 22:16
Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum. 22.10.2026 21:27
Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað. 22.10.2026 20:13
Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Mikill fjöldi ökumanna á yfir höfði sér kærur eða sekt vegna ýmissa umferðarlagabrota eftir daginn í dag en þar á meðal eru sjö sem eiga von á sekt vegna þess að hafa lagt ólöglega. 22.10.2026 19:28