Dagar bílastæðaklukkunnar á Akureyri senn taldir: Gjaldskylda hefst í lok sumars Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi í lok sumars. Þannig mun tími bílastæðaklukkunnar á Akureyri, sem ökumenn hafa jafnan haft sýnilega í bílrúðum á Akureyri, renna sitt skeið. 17.4.2021 14:46
Tugir þurfa í sóttkví vegna smitanna í gær Tugir þurfa að fara í sóttkví í tengslum við þau tvö smit covid-19 sem greindust innanlands í gær. Víðir Reynisson minnir á mikilvægi þess að fólk fari í sýnatöku finni það fyrir minnstu einkennum og hvetur atvinnurekendur til að vera duglega til að miðla upplýsingum til erlends starfsfólks um hve auðvelt sé að komast að í sýnatöku. 17.4.2021 13:29
Úrskurður siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan endanlegur og verður ekki áfrýjað Siðanefnd Ríkisútvarpsins hefur svarað bón Helga Seljan fréttamanns, sem krafðist þess að úrskurður nefndarinnar í máli hans verði endurupptekinn, á þá leið að það sé ekki hægt. Nefndin kveðst ekki hafa neinar forsendur til að endurupptaka úrskurðinn, hann sé því endanlegur og verði ekki áfrýjað. 17.4.2021 12:08
22 börn auk starfsfólks leikskólans Jörfa í sóttkví 22 börn og allri starfsmenn á einni deild leikskólans Jörfa í Reykjavík eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá starfsmanni á leikskólanum. Smitið greindist í gær og er óvíst hvort leikskólinn getur verið opinn að sögn Bergljótar Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Jörfa. 17.4.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag heyrum við í formanni utanríkismálanefndar um yfirlýsingu kínverska sendiráðsins í gær. 17.4.2021 11:30
Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“ Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs. 17.4.2021 10:54
Til rannsóknar hvort fermingarbúðir 140 ungmenna standist sóttvarnareglur Norska lögreglan hefur til rannsóknar hvort sóttvarnareglur hafi verið brotnar þegar 140 fermingarbörn komu saman til fermingarfræðslu í Gjøvik síðustu helgi. Þátttakendur voru fermingarbörn úr fimm sveitarfélögum sem komu saman í Campus Arena í Gjøvik en viðburðurinn var liður í borgaralegri fermingarfræðslu á vegum samtakanna Human-Etisk. 17.4.2021 10:44
Stúlknakór á Húsavík syngur í atriði á Óskarsverðlaunahátíðinni Sautján stúlkur í fimmta bekk í Borgarhólsskóla á Húsavík munu syngja með sænsku söngkonunni Molly Sandén í tónlistarmyndbandi sem sýnt verður á Óskarsverðlaunahátíðinni í lok apríl. Líkt og kunnugt er hefur lagið Husavik – My home town úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story og Fire Saga verið tilnefnt til Óskarsverðlauna. 17.4.2021 09:12
„Ráðherralufsa sem ekki einu sinni á sæti á Alþingi“ Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, uppskar hlátrasköll í þingsal í kvöld þegar hann kallaði Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra og flokksbróður í Vinstri grænum, „ráðherralufsu sem ekki einu sinni á sæti á Alþingi.“ 14.4.2021 23:46
Ein stærsta lúxussnekkja heims á Akureyri Ein stærsta snekkja í heimi, sem ber nafnið Sailing Yacht A og er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Melnichenko, sigldi inn Eyjafjörð í kvöld og er stödd við Akureyri. Að því er greint er frá á akureyri.net í kvöld verður snekkjan í Krossanesvíkinni á næstunni, jafnvel í einhverjar vikur. 14.4.2021 22:19
Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki Fótbolti