Telur að fjöldi muni leita réttar síns sama hvað verður ákveðið Samfylkingin virðist vera eini flokkurinn sem hefur þegar tilnefnt fulltrúa í kjörbréfanefnd til bráðabirgða. Hinir flokkarnir gera það síðar í dag. Oddviti Pirata hyggst kæra kosningarnar til Alþingis í dag. Þingmaður Samfylkingarinn segir líkur á að fjöldi einstaklinga muni leita réttar síns. 1.10.2021 12:00
Útilokar að einhver hafi komist í kjörgögnin Eigendur Hótels Borgarness telja afar ósennilegt að nokkur hafi getað átt við óinnsigluð kjörgögn sem skilin voru eftir í læstum veislusal af yfirkjörstjórn. Myndavélar séu við alla útganga salarins. Formaður yfirkjörstjórnar segir öruggt að enginn hafi farið inn í salinn meðan hann og aðrir í kjörstjórninni brugðu sér frá. 27.9.2021 18:30
Telur eðlilegt að telja aftur í öllum kjördæmum Oddviti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi segir slæmt að upplifa að traust á talningu atkvæða hafi rofnað. Hún ásamt fulltrúum þriggja annarra flokka hafa farið fram á endurtalningu atkvæða í kjördæminu. 27.9.2021 13:00
Ætlar að henda símanum að loknum kosningum Frambjóðendur flokkanna voru margir orðnir þreyttir þegar fréttastofa náði tali af þeim nú einum degi fyrir kjördag. Einn þeirra sagðist ætla að henda símanum eftir kosningar og annar ætlar að njóta sín í spa á sunnudaginn. 24.9.2021 19:37
Kapphlaup um nýja bálstofu í uppsiglingu Kapphlaup virðist vera í uppsiglingu milli Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma og einkaaðila um byggingu nýrrar bálstofu. Forstjóri kirkjugarðana telur aðeins pláss fyrir eina bálstofu í landinu. 23.9.2021 19:00
Tugmilljóna króna tjón vegna tölvuárásar Rússneskir tölvuþrjótar hafa síðan á föstudag haft allt tölvukerfi hátæknifyrirtækis í gíslingu. Þeir krefjast tuga milljóna króna lausnargjalds. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins ætlar ekki að verða við kröfum þeirra. Hann býst við að hægt verði að hefja einhverja starfsemi á ný í fyrirtækinu í dag. 23.9.2021 14:41
Segir Íslendinga lata að taka Strætó Strætisvagnabílstjóri segir Íslendinga lata að nýta sér almenningssamgöngur. Flestir farþegar séu annað hvort krakkar eða útlendingar. Aðeins einn af hverjum tuttugu vissu af bíllausa deginum sem haldinn var hátíðlegur í gær. 23.9.2021 08:44
Gríðarleg menningarverðmæti hurfu með Miðgarðakirkju Formaður sóknanefndar í Grímsey segir eyjaskeggja í áfalli eftir að Miðgarðakirkja brann þar til kaldra kola í gærkvöldi. Ómetanleg menningarverðmæti hafi orðið eldinum að bráð. Mikill vilji sé til að endurreisa kirkjuna. 22.9.2021 20:01
Komu í sjúkraflugi frá Tenerife Allar konurnar fimm sem slösuðust þann 12. september síðastliðinn á spænsku eyjunni Tenerife þegar pálmatré féll á þær eru komnar heim. Tvær þeirra liggja nú á Landspítalanum með alvarleg meiðsl víða um líkamann. 22.9.2021 17:00
„Gríðarlega mikilvægt fyrir þetta samfélag að endurreisa kirkjuna“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hugur sinn sé hjá Grímseyingum. Hún er viss um að það sé ríkur vilji allra flokka til styðja við bakið á þeim við að endurbyggja kirkjuna í eyjunni. 22.9.2021 12:06