„Erfitt að geta ekki sýnt þetta mannlega“ Flókinni ummönnun gjörgæslusjúklinga með COVID-19 fylgir mikið álag að sögn hjúkrunarfræðings á deildinni. Sár myndist undan hlífðarbúnaði og þá taki skortur á mannlegri snertingu á. 18.10.2020 20:02
Segir heilbrigðisráðherra hafa vitað af málinu síðan í febrúar Formaður MS-félagsins segir mannréttindi konu með MS fótum troðin þegar henni var synjað um heimaþjónustu og húsnæði. Heilbrigðisráðherra hafi lengi vitað af málinu og ekkert gert. Nú sé verið að skoða lagalega stöðu konunnar. 18.10.2020 18:30
Heilbrigðisráðherra staðfestir í meginatriðum tillögur sóttvarnalæknis Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi þriðjudaginn 20. október. 18.10.2020 15:50
MS- félagið skorar á stjórnvöld að leysa mál Margrétar MS-félag Íslands segir að yfirvöldum hafi margítrekað verið bent á aðstæður Margrétar Sigríðar Guðmundsdóttur en hún hefur verið heimilislaus síðan í janúar. Félagið harmar stöðu hennar og telur nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða. 18.10.2020 14:48
Telur aðgerðir ríkis og sveitarfélaga ekki vinna saman Aðalhagfræðingur Kviku banka segir fráleitt að sveitarfélög þurfi að skera niður fjárfestingu vegna meðan ríkið auki í. Hún telur mikilvægt að ríkið styðji betur við sveitarfélögin í landinu. 18.10.2020 12:39
150 afbrigði veirunnar fundist við landamæraskimun Á einum mánuði hafa ríflega 1700 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi. Sóttvarnalæknir segir aðeins eitt afbrigði af veirunni í gangi eða hið svokallaða franska afbrigði. 17.10.2020 20:01
Baráttan við kerfið kláraði hjónabandið Fyrrverandi eiginmaður konu með MS segir að allt hafi leikið í lyndi þar til henni var synjað um nauðsynlega heimilisþjónustu hjá Kópavogsbæ og ákveðið að hún ætti að fara á hjúkrunarheimili. Hann hafi ekki lengur bolmagn til að sinna þjónustu við hana, baráttan við kerfið hafi klárað hjónabandið. 17.10.2020 18:31
„Þurfum að fá smitstuðulinn undir einn“ Sóttvarnalæknir segir að að þó smitstuðull hafi lækkað þurfi hann að lækka frekar svo hægt verði að slaka á sóttvarnaraðerðum. Prófessor í líftölfræði ítrekar mikilvægi þess að fólk fari að ítrustu sóttvarnarreglum svo þessi stuðull lækki á næstunni. 17.10.2020 17:00
Kópavogsbær ætlar í samvinnu við ríki að reyna að útvega konunni þjónustu Kópavogsbær hefur sent frá sér tilkynningu vegna málefna konu með MS- taugahrörnunarsjúkdóms sem var synjað um áframhald á heimaþjónustu hjá bænum. Þar kemur fram að bærinn telji óásættanlegt að fólk lendi á gráu svæði milli ríkis og sveitarfélaga. Bærinn ætli eftir bestu getu að reyna að verða viðkomandi úti um þá þjónustu sem hún á rétt á í samvinnu við ríkið. 17.10.2020 15:11
„Búið að hafna mér milljón sinnum“ Ekki virðist hafa verið farið að lögum um þjónustu við fatlað fólk í máli konu sem segir að sveitarfélag hafi sagt upp heimaþjónustusamningi við sig. Þá hafi verið tekin ákvörðun án samráðs við hana að hún færi á hjúkrunarheimili. 17.10.2020 13:26