Snjóþekja á Fjarðarheiði Snjóþekja er nú á Fjarðarheiði og er þar unnið að hreinsun. Sömuleiðis eru hálkublettir víða á Austurlandi og Norðausturlandi. 5.6.2020 10:06
Opna nýjan hjólabrettagarð á Miðbakka Nýtt hjólabrettasvæði verður opnað og tekið í notkun á Miðbakka í Reykjavík klukkan 17 í dag. 5.6.2020 08:38
Smitaðir með háan blóðþrýsting tvöfalt líklegri til að láta lífið Ný rannsókn á fólki sem smitaðist af kórónuveirunni virðist leiða í ljós að fólk með of háan blóðþrýsting er tvisvar sinnum líklegra til að láta lífið af völdum sjúkdómsins en fólk sem er með eðlilegan þrýsting. 5.6.2020 08:12
Brasilía nú í þriðja sæti yfir fjölda dauðsfalla Tæplega 1.500 manns létust síðasta sólarhringinn í Brasilíu og staðfestum smitum fjölgaði um rúmlega 30 þúsund. 5.6.2020 08:00
Bætist í hóp herforingja sem gagnrýna Trump Nú bætist í hóp þeirra herforingja sem gagnrýna Bandaríkjaforseta en hótanir hans um að beita hernum gegn mótmælendum hafa vakið afar hörð viðbrögð, ekki hvað síst innan úr röðum hersins. 5.6.2020 07:08
ESB-ríki opni fyrir ferðalög innan sambandsins fyrir lok mánaðar Framkvæmdastjóri innanlandsmála hjá framkvæmdastjórn ESB hefur beint því til allra ríkja sambandsins að þau ættu að opna fyrir ferðalög innan sambandsins fyrir lok júnímánaðar. 5.6.2020 07:06
Óskar eftir skýringum á framgöngu sérsveitarinnar í útkalli í Kjósinni Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur óskað eftir skýringum á handtöku sérsveitar ríkislögreglustjóra á eldri manni í Kjós á sunnudaginn og sagt var frá á forsíðu Fréttablaðsins í gær. 4.6.2020 14:22
Tilraun gerð til innbrots í tölvukerfi Reiknistofu bankanna Við úrlausn varð þjónusturof klukkan 13:07 sem hafði þær afleiðingar að truflanir eru í starfsemi netbanka og debetkorta. 4.6.2020 13:58
Bein útsending: Markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn Íslandsstofa stendur fyrir kynningar- og vinnufundar fyrir hagaðila og aðra áhugasama um markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn í dag, milli klukkan 13 og 15. 4.6.2020 12:30
Slökkvilið kallað út að hóteli í Keflavík Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur verið kallað út að Marriott-hótelinu á Aðalgötu í Keflavík. 4.6.2020 12:21