Hollendingar að kjörborðinu í skugga heimsfaraldurs Kjörstöðum í Hollandi verður lokað í kvöld, en þingkosningar hafa staðið yfir í landinu síðan á mánudag. Forsætisráðherra landsins til tíu ára, hinn 54 ára Mark Rutte, sækist þar eftir því að framlengja stjórnartíð sína. 17.3.2021 08:43
Missti sjónina tímabundið eftir of stóran skammt 2018 Bandaríska söngkonan Demi Lovato missti sjónina tímabundið eftir að hafa tekið inn of stóran skammt fíkniefna árið 2018. Nærri tveir mánuðir liðu þar til að sjónin varð það góð á ný þannig að hún gat lesið bók. Hún glímir þó við vandamál með sjónina enn þann dag í dag. 17.3.2021 07:28
Suðurstrandarvegur þrengdur á kafla vegna frekari skemmda Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli, en sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. 16.3.2021 14:41
Einn greindist með kórónuveiruna í gær Einn greindist með kórónuveiruna í gær. Sá sem greindist var í sóttkví. Þá greindust þrír á landamærunum, allir í seinni landamæraskimun. 16.3.2021 10:59
Ráðnir í stjórnendastöður hjá Félagsbústöðum Andrés Ívarsson og Kristinn Karel Jóhannsson hafa verið ráðnir í stjórnendastöður hjá Félagsbústöðum. 16.3.2021 09:08
Bond-leikarinn Yaphet Kotto er látinn Bandaríski leikarinn Yaphet Kotto, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í Alien og Bond-myndinni Live and Let Die, er látinn. Hann varð 81 árs gamall. 16.3.2021 08:53
Svíar stöðva einnig notkun á bóluefni AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16.3.2021 08:23
Gauti vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi og fyrrverandi sveitarstjóri á Djúpavogi, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. 16.3.2021 07:53
Verður fjórði heilbrigðisráðherrann á einu ári Hjartalæknirinn Marcelo Queiroga mun taka við embætti heilbrigðisráðherra Brasilíu og verður hann sá fjórði til að gegna embættinu á einu ári. Ekki hafa jafnmargir látist frá upphafi faraldursins og í síðustu viku 16.3.2021 07:33
Ragnar Þór endurkjörinn sem formaður VR Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið endurkjörinn sem formaður VR. Hann hlaut 63 prósent atkvæða. 12.3.2021 14:06