Gunnar vill leiða lista Samfylkingarinnar Gunnar Tryggvason, verkfræðingur sem starfar hjá Faxaflóahöfnum, hefur gefið kost á sér til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara í september. 23.3.2021 07:10
Ráðin forstöðumaður Loftslags og umhverfis hjá Landsvirkjun Jóhanna Hlín Auðunsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns Loftlags og umhverfis hjá Landsvirkjun. 22.3.2021 14:53
Vill eitt af efstu sætunum á lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi Björn Guðmundsson, 64 ára gamall húsasmiður búsettur á Akranesi, sækist eftir einu af efstu fjórum sætunum á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. 22.3.2021 12:29
„Svo breytist vindáttin stöðugt þannig að þetta eru ekki góðar aðstæður“ „[Aðstæður á gosstöðvunum] eru ekki mjög góðar. Það er svolítið mikið rok þarna, gerir haglél og alls konar. Svo er mikil mengun þarna sem safnast fyrir í lægðum og dældum alls staðar.“ Þetta segir Samúel Þorsteinsson hjá Björgunarfélagi Akraness sem hafði verið á gosstöðvunum frá klukkan eitt í nótt. 22.3.2021 11:34
Sjö greindust innanlands síðustu þrjá sólarhringa Sjö greindust innanlands síðustu þrjá sólarhringa. Einn greindist á föstudag, einn á laugardag og fimm í gær, sunnudag. Þrír sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, en aðrir þeir sem greindust um helgina voru í sóttkví. 22.3.2021 10:46
Ráðinn fjármálastjóri Securitas Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas. 22.3.2021 10:06
Eitt fremsta skáld Pólverja fallið frá Pólska ljóðskálið og rithöfundurinn Adam Zagajewski er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést í Kraká. 22.3.2021 09:51
Viðar nýr framkvæmdastjóri Kaptio Viðar Svansson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kaptio. Hann hefur starfað við alþjóðlega hugbúnaðargerð síðastliðin fimmtán ár. 22.3.2021 09:08
Mikil flóð í Nýja Suður-Wales Um átján þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Ástralíu vegna mikilla flóða í Nýja Suður-Wales en gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu síðustu daga. 22.3.2021 08:39
Áttatíu nemendur og fjórir starfsmenn Laugarnesskóla í sóttkví Áttatíu nemendur og fjórir starfsmenn Laugarnesskóla í Reykjavík eru komin í sóttkví eftir að kennari við skólann greindist með kórónuveiruna í gær. 22.3.2021 08:07