Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10.9.2021 08:00
Lítilsháttar skúrir víða um land Spáð er suðvestan og vestan fimm til tíu metrum á sekúndu í dag og lítilsháttar skúrir víða um land. Suðaustantil á landinu verður hins vegar yfirleitt þurrt og bjart, og það léttir einnig til á Vestfjörðum með morgninum. 10.9.2021 07:25
Gefa ríkisstjórnarflokkunum falleinkunn í umhverfisvænni landbúnaðarstefnu Þrenn náttúruverndarsamtök gefa ríkisstjórnarflokkunum þremur nær algera falleinkunn hvað varðar umhverfisáherslur þeirra í landbúnaðarmálum. Stefna þriggja stjórnarandstöðuflokka hlaut náð fyrir augum þeirra. 9.9.2021 15:45
Tekur við sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar Otti Rafn Sigmarsson var kosinn nýr formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar á aðalfundi félagsins um síðustu helgi. 9.9.2021 14:52
Maður féll í sjóinn á Granda Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Granda í Reykjavík upp úr hádegi í dag eftir að tilkynning barst um mann sem hafði fallið í sjóinn. 9.9.2021 12:59
Tveir af fimm vildu hækka stýrivexti meira en gert var Tveir af fimm nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans vildu hækka stýrivexti meira en gert var við síðustu stýrivaxtaákvörðun bankans sem kynnt var fyrir um tveimur vikum. Nefndin ákvað þá að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur í 1,25 prósentur. 9.9.2021 11:09
Bein útsending: Pallborðsumræður ASÍ með forystumönnum flokkanna Alþýðusamband Íslands stendur fyrir pallborðsumræðum í dag þar sem rætt verður við forystufólk þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í komandi kosningum til Alþingis. 9.9.2021 10:31
Tekur við starfi markaðsstjóra Klappa Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir hefur ráðið Láru Sigríði Lýðsdóttur í stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins. 9.9.2021 09:34
Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins fer fram í rafrænni dagskrá í dag og hefst klukkan níu. Hægt verður að fylgjast með fundinum hér á Vísi í spilara að neðan. 9.9.2021 08:30
Hafa kynnt lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sætið á framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, en flokkurinn hefur nú kynnt listann í heild. 9.9.2021 08:22