Rýma svæðið eftir að hraunstraumur fór óvænt að renna hratt í Nátthaga Lögregla á Suðurnesjum og björgunarsveitir vinna nú að rýmingu svæðisins á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli eftir að hraunstraumur fór óvænt að renna suður Geldingadali og í Nátthaga. 15.9.2021 11:22
26 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Átján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 69 prósent. Átta voru utan sóttkvíar, eða 31 prósent. 15.9.2021 10:48
Kölluð út vegna göngufólks í sjálfheldu á Bolafjalli Björgunarsveit í Bolungarvík var kölluð út vegna göngufólks í sjálfheldu í Bolafjalli ofan við Skálavík um klukkan 22 í gærkvöldi. 15.9.2021 09:30
Britney lokar Instagram-reikningi sínum Bandaríska söngkonan Britney Spears hefur ákveðið að slökkva á Instagram-reikningi sínum. 15.9.2021 09:01
Gaf sig fram eftir 29 ár á flótta Maður sem flúði úr áströlsku fangelsi fyrir nærri þrjátíu árum hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hann missti heimili sitt í kjölfar faraldurs kórónuveirunnar. 15.9.2021 08:43
Fremur leiðinleg kosningabarátta og litlausir frambjóðendur Innan við tvær vikur eru nú til kosninga til sambandsþings Þýskalands sem munu leiða í ljós hver verður arftaki Angelu Merkel sem mun senn láta af embætti kanslara eftir um sextán ár í starfi. Stjórnmálafræðiprófessor segir að mörgum þyki kosningabaráttan hafa verið fremur leiðinleg og marga helstu frambjóðendur vera litlausa. 15.9.2021 08:20
FÍB kærir SFF vegna hagsmunagæslu framkvæmdastjóra Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur sent kvörtun til Fjármálaeftirlitsins vegna hagsmunagæslu framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja fyrir hönd tryggingafélaganna í grein sem birtist á Vísi. 15.9.2021 07:58
Kvistaborgarbörn í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna rakaskemmda Starfsemi leikskólans Kvistaborg í Fossvogi færist tímabundið í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna framkvæmda sem framundan eru í húsnæði leikskólans vegna rakaskemmda og uppfærslu á húsnæði leikskólans. 15.9.2021 07:29
Vætusamir dagar framundan Fremur vætusamt verður næstu daga og mun rigna í öllum landshlutum, þó mismikið og ekkert endilega á sama tíma heldur og eins munu koma kaflar þar sem dagpartar verða alveg þurrir. 15.9.2021 07:18
Aflétta óvissustigi vegna Skaftárhlaups Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta óvissustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá. Hlaupið er yfirstaðið. 14.9.2021 14:27