Hannes og Steinunn heiðursdoktorar við Háskóla Íslands Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir voru sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Hátíðasal skólans í gær. 24.5.2022 15:17
Innkalla leikfangið „Mushroom teether“ Amazon hefur innkallað leikfangið „Mushroom Teether toys for Newborn Babies, Toddlers, infants, Relieve Sore Gum – BPA-Free Chew Toy “sem selt hefur verið á heimasíðu fyrirtækisins. 24.5.2022 14:32
Ólöf tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Reykjalundi Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi. Hún tekur við starfinu af Láru Margréti Sigurðardóttur sem lét nýverið af störfum eftir rúmlega tuttugu ára starf. 24.5.2022 14:05
Tíðinda að vænta í Hafnarfirði á morgun Stefnt er að því að kynna niðurstöðu úr meirihlutaviðræðum Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í Hafnarfirði á morgun. 24.5.2022 10:51
Tómas Þór fyllir skarð Ólafs á Landspítalanum Tómas Þór Ágústsson mun tímabundið taka við stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá og með 23. júlí 2022 í fjarveru Ólafs Baldurssonar. Ólafur verður í ársleyfi frá þeim tíma til að gegna starfi yfirmanns lungnaþjónustu á Karolinska-háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi. 24.5.2022 09:48
Um sextíu staðfest tilfelli apabólu í Evrópu Líklegt verður að teljast að apabóla muni berast til Íslands á næstunni. Því verða landsmenn að vera sem best undirbúin sem felst í að auka vitund almennings og heilbrigðisstarfsmanna um sjúkdóminn, tryggja hraða og örugga greiningu hans, beita einangrun og sóttkví eins og við á og gefa ráðleggingar um fyrirbyggjandi aðgerðir. 24.5.2022 08:48
Fer fram á fimm ára fangelsi yfir Macchiarini Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á að ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini verði dæmdur í fimm ára fangelsi vegna grófra líkamsmeiðinga á þremur einstaklingum sem fengu grædda í sig plastbarka hjá lækninum. Sjúklingarnir létust allir fáeinum mánuðum eftir aðgerðirnar. 23.5.2022 14:24
Pálmi nýr forstjóri Wedo og Anna Jóna tekur við stöðu fjármálastjóra Pálmi Jónsson, sem fyrr í vetur tók við stöðu rekstrarstjóra Wedo ehf. hefur tekið við sem forstjóri Wedo ehf. Þá hefur Anna Jóna Aðalsteinsdóttir tekið við starfi fjármálstjóra félagsins. Wedo ehf er eigandi Heimkaupa, Hópkaupa og Blands. 23.5.2022 12:39
Götulistakonan Miss. Tic er látin Franska stensil-og götulistakonan Miss. Tic er látin, 66 ára að aldri. 23.5.2022 08:51
Skjálfti 3,5 norðaustur af Grindavík í morgun Skjálfti 3,5 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 7:15 í morgun. 23.5.2022 07:52