„Mjög venjulegt sumarveður“ Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi. 9.6.2026 16:23
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. 9.6.2026 14:09
Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Förðunarfræðingarnir Halla Þórarinsdóttir og Skjöldur Eyfjörð ætla sér stóra hluti á íslenskum snyrtivörumarkaði og fara brátt af stað með eigið merki, Just Makeup. Halla og Skjöldur voru viðmælendur Sindra Sindrasonar í nýjasta þætti af Íslandi í dag. 9.6.2026 14:01
Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson hafa gengið til liðs við Ljósleiðarann. Ásta sem forstöðukona Sölu og þjónustu og Sigurður sem leiðtogi sölu og viðskiptaþróunar, segir í fréttatilkynningu frá Ljósleiðaranum. 9.6.2026 13:36
Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu. 9.6.2026 11:47
Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Almennur tekjuskattur nam 282 milljörðum króna og fjármagnstekjuskattur 65 milljörðum króna á síðasta ári. Samtals nam tekjuskattur til ríkissjóðs 346 milljörðum og 417 milljarðar króna runnu í útsvar til sveitarfélaga. Hlutfall tekjuskatts til ríkissjóðs var 45,4% á móti 54,6% sem rann til sveitarfélaga. 9.6.2026 10:36
Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd. 8.6.2026 17:48
Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgaði um 8,5% milli ára. 8.6.2026 14:49
Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar. Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 8.6.2026 14:01
Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði. 8.6.2026 11:04