Hafa borið kennsl á hinn látna Lögregla hefur borið kennsl á lík sem fannst við Austurbæjarskóla í Reykjavík laust fyrir klukkan 13 í dag. 11.8.2026 17:00
Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Einn var um borð í bátnum en hann var óhultur þegar aðstoð barst. 11.8.2026 16:32
Líkfundur við Austurbæjarskóla Laust fyrir klukkan 13 barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann við Austurbæjarskóla í Reykjavík, sem talið var að væri látinn. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist svo vera. Ekkert bendir til þess að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. 11.8.2026 14:26
Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex sæta ákæru fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024, er komin á dagskrá Héraðsdóms Suðurlands. Reiknað er með því að aðalmeðferð taki heila sjö daga. 11.8.2026 13:20
Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Landskjörstjórn hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem frétt Morgunblaðsins, um að orðalagi á upplýsingavef Landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok mánaðar hafi verið breytt, er sögð alfarið röng. 11.8.2026 11:00
Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem framin var á Brekastíg um klukkan 19:30, laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum manni, sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið. 11.8.2026 10:02
Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Fulltrúar frá ungliðahreyfingum allra stjórnmálaflokka landsins tóku þátt í Gleðigöngunni um helgina, nema ungum Miðflokksmönnum. Formaðurinn segir að í göngunni séu auglýstar hugmyndir sem þeir telji ekki „ástæðu til að lyfta á stall“. 10.8.2026 20:00
Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Eigendur spænska veitingastaðarins La Barceloneta í Templarasundi munu skella staðnum í lás í hinsta sinn á sunnudag. Ástæðan er sú að þeir geta ekki leigt rýmið í Templarasundi áfram og þeir leita að nýju rými undir staðinn. 10.8.2026 16:38
Neitaði að borga og sló vagnstjórann Ungur karlmaður neitaði að greiða fargjald í strætisvagni á leið 6 um klukkan 11 í morgun. Þegar vagnstjórinn vísaði honum út úr vagninum sló hann til vagnstjórans áður en hann fór út. 10.8.2026 16:02
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins. 10.8.2026 12:55