Glódís rústaði Guðrúnu og Ísabellu í sjö manna bolta Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir, landsliðskonur í fótbolta, mættust með félagsliðum sínum Bayern Munchen og Rosengard á skemmtilegu móti þar sem aðeins sjö leikmenn eru í hverju liði. Glódís og stöllur í Bayern báru 4-0 sigur úr býtum. 22.5.2025 16:30
EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet EuroBasket 2029 verður haldið í höfuðborgum Spánar, Grikklands, Slóveníu og Eistlands. Stefnt er að áhorfendameti í opnunarleiknum, sem mun fara fram á Santiago Bernabeu í Madríd, fótboltavelli Real Madrid sem verður breytt í körfuboltavöll. 22.5.2025 15:16
Sandra tekur „rykugu hanskana af hillunni“ til hjálpar FH Sandra Sigurðardóttir, landsliðsmarkvörður til margra ára, hefur tekið hanskana af hillunni til hjálpar FH og mun spila með liðinu í leiknum gegn Breiðablik á morgun. Sandra leysir af aðalmarkvörðinn Aldísi Guðlaugsdóttur, sem sleit krossband um síðustu helgi. 22.5.2025 14:03
Trúlofað par tekið inn í FH fjölskylduna Khalil Chaouachi og sambýliskona hans Szonja Szöke munu leika með handboltaliðum FH næstu þrjú árin. Khalil er 23 ára línumaður en Szonja tvítugur markmaður. Félagið mun hjálpa þeim að aðlagast nýju landi og nýjum handbolta. 22.5.2025 13:08
„Verð fyrir vonbrigðum ef ég fæ ekki að halda áfram“ Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, segir það verða vonbrigði ef hann fær ekki að halda áfram þjálfun liðsins og byggja á árangrinum sem náðist í gærkvöldi. Evrópudeildartitillinn gæti nýst sem góður stökkpallur, þrátt fyrir tuttugu töp á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. 22.5.2025 11:01
Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins Shai Gilgeous-Alexander var valinn verðmætasti leikmaður NBA í gærkvöldi, eftir að hafa skorað mest allra leikmanna að meðaltali og farið fyrir liði Oklahoma City Thunder á besta tímabili í sögu félagsins. Shai fékk 71 af 100 atkvæðum en Nikola Jokic varð annar með 29 atkvæði. 22.5.2025 07:01
Dagskráin í dag: Pílukast, íshokkí og golf Fjórar beinar útsendingar má finna á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone í dag. 22.5.2025 06:02
„Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Benedikt Guðmundsson var gríðarlega sár og svekktur eftir tap Tindastóls gegn Stjörnunni í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segir liðið hafa lagt sig vel fram en klikkað á allt of mörgum mikilvægum skotum. Spurningum um framtíðina var hann ekki tilbúinn að svara. 21.5.2025 23:35
Ægir valinn verðmætastur Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar en vaggaði fingri þegar hann tók við verðlaununum. 21.5.2025 23:09
„Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ „Alsæla. Ég á hreinlega ekki orð“ sagði Íslandsmeistarinn Hlynur Bæringsson eftir sigur í oddaleik gegn Tindastóli. Þetta var hans síðasti leikur á löngum ferli, sem endar með fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögu Stjörnunnar. 21.5.2025 22:27
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent