Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum og standa þeir enn í 3,75-4 prósentum. Líklegt þykir að ákvörðunin eigi eftir að reita Bandaríkjaforseta til reiði enda stutt í þingkosningar í landinu. 28.10.2026 20:57
Kveiksþætti kippt út tímabundið Þáttur Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefur tímabundið verið fjarlægður af vef Ríkisútvarpsins. Ritstjórinn segir að breyta hafi þurft myndefni í þættinum. 28.10.2026 19:32
TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Portúgalska flugfélagið TAP Air tilkynnti í dag að það ætlaði að hefja flug milli Keflavíkurflugvallar og Lissabon á sumaráætlun sinni 2027. Flogið verður þrisvar í viku milli áfangastaðanna frá 1. apríl til 28. október 2027. 28.10.2026 18:35
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært konu sem vann á hjúkrunarheimilinu Grenilundi fyrir fjársvik og brot í opinberu starfi þar sem hún er grunuð um að svíkja hundruð þúsunda króna í reiðufé af korti vistmanns. Konan sagði upp störfum þegar í stað þegar upp komst um málið. 28.10.2026 17:58
„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. 20.10.2026 23:58
Willum í stjórn Litla spítalans Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður í ráðherratíð Willums. 20.10.2026 22:46
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. 20.10.2026 21:12
Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Tveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum. 20.10.2026 20:15
Eggert ráðinn til Litla spítalans Litli spítalinn ehf. hefur ráðið Eggert Eyjólfsson, yfirmann bráðalækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), til starfa. 20.10.2026 19:07
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19.10.2026 23:36