Situr uppi með rándýrt læknisvottorð og 600 þúsund króna reikning Kona nokkur sem lenti í bílslysi árið 2015 þarf að greiða Sjóvá og ökumanni bílsins sem varð valdur að slysinu 600 þúsund króna málskostnað. Konan stefndi tryggingarfyrirtækinu og ökumanninum til greiðslu læknisvottorðs sem hún sótti til að innheimta skaðabætur vegna slyssins. 27.11.2019 13:25
Lækka leiguverð til að halda í leigjendur Innkoma Bjargs íbúðafélags á leigumarkaðinn hefur strax haft áhrif á leiguverð á markaðnum. Þannig hafa leigusalar á almennum markaði lækkað leiguverð til þess að halda í leigjendur, frekar en að missa þá. 27.11.2019 12:20
Bein útsending: Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn? Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn? Þannig hljóðar yfirskriftin á fyrirlestri sem Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, heldur í Háskólanum í Reykjavík í dag. 27.11.2019 11:15
Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur. 27.11.2019 11:06
Bein útsending: Þjóð undir þaki - jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði Húsnæðisþing Íbúðalánasjóðs á Hilton Reykjavík Nordica hefst klukkan 10 í dag og lýkur klukkan 16:30. Yfirskrift þingsins í ár er Þjóð undir þaki - jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði. 27.11.2019 10:02
Tuttugu mánuðir í fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning Pólskur karlmaður hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfsölu- og lyfjalagabrot. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir innflutning á 900 millilítrum af amfetamínbasa, 95 steratengdum töflum og 120 millilítra af steravökva. 25.11.2019 16:46
Varar við framsetningu íslenskra verslana í aðdraganda svarts fössara Árvökull Akureyringur segir AB varahluti svipta neytendur af rétti sínum til að taka upplýsta ákvörðun við kaup með auglýsingum sínum um vörur á tilboði. 25.11.2019 13:42
Náði myndskeiði af utanvegaakstri sem leiddi til 150 þúsund króna sektar Ökumaður jepplings á Suðurlandi var sektaður um 150 þúsund krónur í síðustu viku fyrir að hafa ekið í hringi utan vegar á Skeiðarársandi. Þetta kemur fram í skýrslu Lögreglunnar á Suðurlandi um verkefni síðustu viku. 25.11.2019 13:22
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um grófa árás gegn ungri konu Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á föstudaginn á gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir tvítugum karlmanni sem grunaður er um tilraun til manndráps eða mjög grófa líkamsárás á sautján ára kærustu sína. 25.11.2019 11:28
Lögreglumaðurinn ekki við störf um þessar mundir Tæplega þrítugur lögreglumaður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi er ekki við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem stendur. 22.11.2019 16:57