Snarpur morgunskjálfti Jarðskjálfti fannst vel á suðvesturhorninu um klukkan 08:49 í morgun. Stærð hans reyndist 4,6 en skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Skjálftinn varð rétt austur af Fagradalsfjalli. 10.3.2021 08:52
Launahækkun og þriggja milljóna króna eingreiðsla til Bjarna Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er með tæplega 2,9 milljónir á mánuði í laun eftir fimmtán prósent launahækkun sem tók gildi um mánaðamótin. 10.3.2021 08:46
Neitar að hafa nauðgað fimmtán ára stúlku Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga fimmtán ára stúlku. Í ákæru sem fréttastofa fékk frá skrifstofu Héraðsdóms Suðurlands kemur ekki fram hvar eða hvenær brotið átti sér stað en þó að það hafi verið að næturlagi. Farið er fram á þrjár milljónir króna í miskabætur fyrir hönd stúlkunnar. 10.3.2021 06:15
Listaverk Margeirs Dire heitins komið heim í portið á Prikinu Strætóskýli sem verið hefur við Njarðargötu í Reykjavík hefur fengið nýtt heimili í Bankastræti. Nánar tiltekið á kaffihúsinu Prikinu þar sem því hefur verið komið fyrir í porti staðarins sem snýr út að Ingólfsstræti. Á skýlið er málað listaverk eftir fastagest á Prikinu sem féll frá langt fyrir aldur fram. 9.3.2021 15:35
„Köld tuska sem dómsmálaráðherra hendir framan í almenning“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er hneyksluð á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem samið hefur verið við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann og fyrrverandi dómara við Hæstarétt um aðstoð við vinnu ráðuneytisins að styttingu málsmeðferðartíma í refsivörslukerfinu. 9.3.2021 14:41
Bein útsending: Úthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra munu kynna úthlutun ársins 2021 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða á sameiginlegum fundi klukkan 13:30. 9.3.2021 12:55
Gul viðvörun á fjórum spásvæðum Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir. Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og gildir til miðnættis. Varað er við hvassviðri eða stormi, snjókomu eða hríð og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. 9.3.2021 12:46
Galli á jafnréttislögum sem nú sé búið að laga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mál menntamálaráðherra gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur ekki hafa verið rætt á fundi ríkisstjórnar og heldur ekki við sig persónulega. Málið sé dæmi um galla á jafnréttislögum sem nú sé búið að laga. 9.3.2021 11:48
Bein útsending: Hvað eru markahlutir og hvernig eru þeir nýttir í tækninýsköpun? Marina Candi, prófessor og forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar í nýsköpun og frumkvöðlafræðum, heldur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis þar sem hún fjallar um ferli tækninýsköpunar og markahluti (e. boundary objects). Fyrirlesturinn hefst klukkna tólf og stendur í klukkustund. 9.3.2021 11:45
Boðar breytt fyrirkomulag samræmdra prófa á næsta ári Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að fjölbreytt, stutt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni verði notuð til að kanna stöðu nemenda og bera saman frá og með næsta ári. Hún segir mjög mikilvægt að fram fari samræmt mat svo hver og einn nemandi viti hvar hann standi. 9.3.2021 10:53