Víkingar streyma í hraðprófin Segja má að Fossvogurinn sé á yfirsnúningi fyrir morgundeginum og það tengist ekki á nokkurn hátt Alþingiskosningum. Karlalið Víkings á risastóran möguleika á að tryggja sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í þrjátíu ár með sigri á Leikni á heimavelli sínum í Víkinni klukkan 14. 24.9.2021 14:12
Mótmæla á Austurvelli: Hvetja almenning til að kjósa með loftslagið og framtíð í huga Í kringum hundrað manns eru mættir á Austurvöll þar sem klukkustundarlöng mótmæli vegna ófullnægjandi aðgerða íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum fara fram. 24.9.2021 11:50
„Þó að við séum úti á landi þá erum við samt til“ Fólkið á Suðurlandi vill að framkvæmd brúar yfir Ölfusá verði flýtt, Austfirðingar vilja betri samgöngur og á Vestfjörðum minnir fólk á að heilbrigðismálin séu sett í forgang. Þetta kom fram í innslagi sem sýnt var í Kappræðuþætti Stöðvar 2 í kvöld. 23.9.2021 21:02
Heilmikil dramatík í aðdraganda síðustu kosninga Gengið verður til Alþingiskosninga laugardaginn 25. september. Í framhaldinu munu flokkarnir þreifa hver á öðrum varðandi myndun ríkisstjórnar. Það er sannarlega ekki alltaf auðvelt og var það sannarlega ekki fyrir fjórum árum. 23.9.2021 20:05
Svona voru kappræðurnar á Stöð 2 Leiðtogar stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram krafta sína til Alþingis næstu fjögur árin mæta í sjónvarpssal Stöðvar 2 á Suðurlandsbraut og takast á í kappræðum að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.9.2021 17:33
Fylgi Katrínar meira en næstu þriggja samanlagt Þegar landsmenn eru spurðir að því hvern af leiðtogum stjórnmálaflokkanna þeir vilji sjá sem næsta forsætisráðherra þá svara 36 prósent þeirra: Katrín Jakobsdóttir. Þetta kemur fram í nýrri Maskínukönnun. 23.9.2021 17:27
Langar raðir kjósenda í Kringlunni og Smáralind Landsmenn streyma til að kjósa utan kjörfundar sem aldrei fyrr en á þriðja tímanum í dag höfðu rúmlega 37 þúsund manns greitt atkvæði á landvísu. 23.9.2021 17:03
Prúðbúnir Verzlingar stigu langþráðan dans í Hörpu Nemendur á þriðja ári í Verslunarskóla Íslands héldu peysufatadaginn hátíðlega í dag með því að stíga dans í Hörpu. 23.9.2021 17:01
Play nælir í sölusérfræðing frá Icelandair Tatiana Shirokova hefur verið ráðin forstöðumaður sölusviðs Play og mun hún bera ábyrgð á sölu- og dreifingarmálum félagsins. Sölusvið er hluti af sölu- og markaðssviði og tekur Tatiana til starfa þann 1. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play. 23.9.2021 16:50
Logi Einarsson búinn að greiða atkvæði Landsmenn ganga flestir að kjörborði Alþingiskosninganna á laugardaginn en óvenju margir hafa þó nýtt möguleikann á að kjósa utan kjörfundar þetta árið. Þeirra á meðal er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sem mætti í Kringluna í dag. 23.9.2021 12:51