Afglæpavæðingin og innflytjendur brenna á yngsta kjörna þingmanni sögunnar Óhætt er að segja að Lenya Rún Taha Karim, nýr þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, hafi verið steinhissa þegar í ljós kom að hún náði kjöri á Alþingi. Lenya Rún er 21 árs og brennur fyrir málefni útlendinga og innflytjenda. 26.9.2021 10:32
Formennirnir mættu á Sprengisand Spennandi kosninganótt er að baki og fram undan áhugaverður dagur með viðræðum forystufólks flokkanna sem eðli máls samkvæmt er missátt við niðurstöðurnar í Alþingiskosningunum. 26.9.2021 09:15
Lokatölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar þingmaður í Reykjavík Ásmundur Einar Daðason er nýr þingmaður Reykvíkinga eftir eftir stórbætingu flokksins frá því í kosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn fékk 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Um er að ræða langþráðan þingmann flokksins í kjördæminu. Píratar náðu tveimur mönnum inn á þing í kjördæminu. 26.9.2021 04:55
Lokatölur úr Reykjavík suður: Birgir náði inn en Miðflokkurinn tapaði manni Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður var á pari við fyrir fjórum árum en flokkurinn bætti engu að síður við sig þingmanni í kjördæminu. Samfylkingin missir mann en Vinstri græn halda sínum tveimur. 26.9.2021 04:41
Bein útsending: Talningarfólk vinnur af kappi í Laugardalshöll Starfsfólk í kjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norður og suður stendur vaktina í Laugardalshöll langt fram eftir nóttu. Talið er í öllum kjördæmum fram á nótt en í Laugardalshöll er beint streymi. 26.9.2021 02:36
Kosningapartý á Nesinu sem verður seint toppað Logi Ágústs, Glúmur og Lilja í epísku kosningapartý á Seltjarnarnesinu? Ekki alveg en einhver hefði þó látið blekkjast. Hressir vinir blésu til partýs í tilefni kosninga þar sem allir klæddu sig upp sem þingmenn og voru í banastuði. 26.9.2021 02:13
Fjóreykið Bassi, Patrekur, Balti og Egill Helga Æðisstrákarnir Bassi og Patrekur voru í beinni útsendingu frá Ráðhúsi Reykjavíkur í kosningavöku Stöðvar 2 og voru ekki einu stjörnurnar á svæðinu, eins og þeir komust sjálfir að orði. 25.9.2021 21:37
Þóra hans Bjarna segir umræðuna oft óvægna Þóra Margrét Baldvinsdóttir segir engan fara í þingmennsku nema af einhverri hugsjón. Umræðan sé oft óvægin og hún myndi vara börnin sín við umhverfinu hefðu þau áhuga á að leggja þingmennskuna fyrir sig. 25.9.2021 21:00
Hlýddi mömmu og skellti sér með bjór á kjörstað Zakarías Friðriksson var á meðal þeirra sem skelltu sér á kjörstað í Smáranum í dag. Zakarías er harður stuðningsmaður Breiðabliks og skaust af leik sinna manna gegn HK í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í dag til að kjósa. 25.9.2021 19:46
Ný Maskínukönnun: Ríkisstjórnin nær til sín tveimur þingmönnum og heldur velli Framsóknarflokkurinn mælist með 15,4 prósenta fylgi í nýrri Maskínukönnun fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir vikið fengi flokkurinn ellefu þingmenn og er næststærsti flokkur landsins. 24.9.2021 16:39