Magnús Davíð kærir til kjörbréfanefndar og krefst uppkosningar Magnús Davíð Norðdahl oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. 27.9.2021 11:33
Karl Gauti ætlar að kæra framkvæmd kosninga til lögreglu Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi þingmaður Miðflokksins, er í þessum skrifuðu orðum að vinna að kæru til lögreglu. Krafa hans er skýr, að upplýst verði um atvik í Norðvesturkjördæmi þar sem ráðist var í endurtalningu. 27.9.2021 11:09
Allt grænt í Kauphöllinni eftir kosningar Fjárfestar virðast vera ánægðir með niðurstöðuna í Alþingiskosningunum um helgina ef marka má græna litinn sem er alls ráðandi í Kauphöllinni eftir opnun markaða. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,5% það sem af er degi. 27.9.2021 10:39
Ekki talin þörf á endurtalningu í Suðurkjördæmi þó mjótt sé á munum Formaður kjörstjórnar í Suðurkjördæmi segir ekki ástæðu til að ráðast í endurtalningu á atkvæðum í umdæminu þrátt fyrir að afar mjótt sé á munum. Gerð var úttekt á vinnubrögðum og verkferlum í dag og kom engin villa upp þegar tíu prósent kjörseðla höfðu verið skoðaðir. 26.9.2021 16:14
Þrír fluttir með þyrlu eftir árekstur og bílveltu á Holtavörðuheiði Þrír slösuðust í umferðarslysi á Holtavörðuheiðinni á þriðja tímanum í dag. Voru þeir fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti við spítalann á fimmta tímanum. 26.9.2021 15:04
Stal senunni með ítrekuðu bjórþambi á kosningavöku Óhætt er að segja að stemmningin hafi verið góð á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins í Hilton Nordica á Suðurlandsbraut í dag. Þar flæddu eðal guðaveigar eins og Sálin söng í lagi sínu Sódóma. 26.9.2021 14:59
Sú yngsta inn og Brynjar út: „Ég hef bara aldrei séð hana áður“ Þau Lenya Rún Taha Karim og Sigmar Guðmundsson voru öllu ánægðari með niðurstöðu kosninganna í nótt en Brynjar Níelsson. Brynjar hafði skipti við Lenyu sem þingmaður í Reykjavík en kennir henni ekki um. Enda hafi hann aldrei séð hana áður. 26.9.2021 12:22
Aukafréttatími Stöðvar 2 í tilefni kosninga Úrslit Alþingiskosninganna eru ljós eftir spennandi nótt. Atburðarásin verður gerð upp í aukafréttatíma klukkan 12 á Stöð 2. 26.9.2021 11:08
Þorgerður Katrín tekur upp hanskann fyrir Katrínu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir ljóst að Vinstri græn geti ekki farið í ríkisstjórn nema að gera kröfu um forsætisráðherrastólinn. Viðreisn bætti við sig einum þingmanni en Þorgerður Katrín virkaði ekkert sérstaklega ánægð með niðurstöðu flokksins á Sprengisandi í morgun. 26.9.2021 11:00
Afglæpavæðingin og innflytjendur brenna á yngsta kjörna þingmanni sögunnar Óhætt er að segja að Lenya Rún Taha Karim, nýr þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, hafi verið steinhissa þegar í ljós kom að hún náði kjöri á Alþingi. Lenya Rún er 21 árs og brennur fyrir málefni útlendinga og innflytjenda. 26.9.2021 10:32