Kannast ekkert við byrlunarfaraldur í Reykjavík Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu og eigendur skemmtistaða og pöbba í miðbæ Reykjavíkur kannast ekki við það að byrlunarfaraldur geysi í miðbæ Reykjavíkur. Eigandi Bankastræti Club í Reykjavík segist vita um nokkur tilvik sem upp hafi komið á staðnum undanfarnar vikur og fleiri stöðum. 22.10.2021 14:57
Hulda tilbúin að taka við keflinu af Hauki Hulda Bjarnadóttir, kylfingur og starfsmaður hjá Marel, hefur ákveðið að gefa kost á sér til forseta Golfsambands Íslands. Haukur Örn Birgisson hefur tilkynnt að hann ætli að láta staðar numið sem forseta. 22.10.2021 10:26
Átök á Pablo Discobar: Rekstrarstjóri réðst að gesti með vínflösku Rektrarstjóri Pablo Discobar, skemmtistaðar sem nýlega var opnaður að nýju eftir eldsvoða í mars í fyrra, missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi. Lögreglan er með málið til rannsóknar. Rekstrarstjórinn er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum. 21.10.2021 17:16
Læsa hliðum til að bregðast við áreiti karlmanns í Laugardal Knattspyrnufélagið Þróttur í Reykjavík hefur ákveðið að loka öllum nema einum aðgangi að gervigrasvelli sínum í Laugardal til að sporna við áreiti karlmanns gagnvart börnum í Dalnum. Íþróttastjóri Þróttar lýsir algjöru úrræðaleysi því þótt maðurinn sé endurtekið handtekinn er hann mættur jafnharðan á svæðið. 21.10.2021 15:50
Anton Kristinn og sakborningar féllust í faðma Anton Kristinn Þórarinsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í Rauðagerðismálinu en var ekki ákærður, fagnaði með sakborningum sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Anton féllst í faðma með ákærðu í morgun. 21.10.2021 11:00
Einn af hverjum fjórum á Íslandi notar Twitter Íslendingum sem nota Twitter fjölgar um 7% milli ára og segjast nú 24% landsmanna nota miðilinn samkvæmt nýrri samfélagsmiðlamælingu Gallup. 20.10.2021 17:05
Verðið hjá Póstinum hækkar á landsbyggðinni Verð á sendingum Íslandspósts á fjölpósti og sendingum á pökkum 0-10 kg að þyngd tekur breytingum um mánaðamótin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. 20.10.2021 16:22
Tafir á umferð vegna áreksturs og malbikunar Malbikun hefur staðið yfir á hægri akrein á Vesturlandsvegi til vesturs, á milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar eftir hádegið í dag. Nokkur töf er á umferð inn í Reykjavík af þessum sökum. Sömuleiðis er töf á umferð út úr bænum vegna áreksturs. 20.10.2021 15:40
Dómur kveðinn upp í Rauðagerðismálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Rauðagerðismálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 8:50 í fyrramálið. Fjórir eru ákærðir í málinu þeirra á meðal Angjelin Sterkaj sem er sakaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar. 20.10.2021 13:52
Fjögur kíló af kókaíni í leynihólfi bíls í Norrænu Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur grunuð um stórtækt fíkniefnasmygl hingað til landsins með Norrænu. Fjögur kíló af kókaíni fundust í sérútbúnu hólfi í bíl. 20.10.2021 13:45