Allhvöss norðaustanátt og snjór norðan- og austantil Suðaustur af landinu er nú djúp lægð sem heldur að okkur allhvassri norðaustanátt. Geri má ráð fyrir snjókomu á Norður- og Austurlandi, en yfirleitt bjartviðri sunnanlands. Veður 8. apríl 2024 07:13
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7. apríl 2024 21:44
Vonskuveður um allt land og vegir víða ófærir Vonskuveður með mikilli snjókomu gengur yfir Austfirði og Norðurland en víða hefur snjóað og verið mjög hvasst um vestanvert landið. Vegir eru lokaðir um allt land og sums staðar væntir ekki fregna fyrr en á morgun. Veður 7. apríl 2024 10:27
Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Djúp lægð suðaustur af landinu gerir það að verkum að hvasst verður víða í dag. Hvassast suðaustantil, þar sem gul veðurviðvörun gildir líkt og á öllu austanverðu landinu. Veður 7. apríl 2024 08:07
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6. apríl 2024 21:13
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6. apríl 2024 18:24
Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Veturinn 2023 til 2024 var fjórði sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga. Sólríkara var veturna 1947, 2023 og 1966. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Veður 6. apríl 2024 14:23
Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Djúp lægð nálgast landið úr suðri og því verður vaxandi norðaustanátt á landinu í dag, 10 til 18 metrar á sekúndu um hádegi en 15 til 23 seinnipartinn, hvassast suðaustantil. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið austanvert. Veður 6. apríl 2024 08:51
Gular viðvaranir um allt austanvert landið Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt austanvert landið um helgina. Fyrr í dag var búið að gefa út gula viðvörun fyrir suðausturland en hafa nú nokkrir landshlutar bæst við. Veður 5. apríl 2024 15:13
Gul viðvörun á suðausturlandi um helgina Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir suðausturland vega norðaustanstorms. Viðvörunin tekur gildi á hádegi á morgun og gildir til klukkan sex síðdegis á sunnudag. Veður 5. apríl 2024 13:03
Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Lægðin sem nú er að finna vestur af landinu og bar með sér snjókomubakka yfir vestanvert landið, hreyfist hægt og bítandi til vesturs og léttir í kjölfarið smám saman til. Í öðrum landshlutum er bjart með köflum en stöku él eru á víð og dreif. Veður 5. apríl 2024 06:55
Óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum Það hefur verið óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum síðustu daga. Um páskana og fyrir páska snjóaði mikið og blés í hvössum norðaustanáttum með þeim afleiðingum að mikill snjór safnaðist til fjalla. Vindflekar hafa byggst upp í flestum viðhorfum og veikleikar þróast innan snjóþekjunnar. Innlent 4. apríl 2024 23:39
Líkur á erfiðum akstursskilyrðum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu í dag og snjókomu á vestanverðu landinu. Hafa íbúar á höfuðborgarsvæðinu vaknað upp við hvíta jörð í morgun. Veður 4. apríl 2024 07:13
Þokkalega bjart veður víðast hvar Veðurstofan gerir ráð fyrir hægum vindi um allt land í dag og þokkalega björtu veðri víðast hvar. Má því reikna með að það verði þurrt um mest allt land. Veður 3. apríl 2024 07:04
Göng um Öxnadalsheiði: „Snýst um hagsmuni allra“ Að minnsta kosti tvenn gangaverkefni ættu að vera í gangi á hverjum tíma segir bæjarstjóri Akureyrar sem kallar eftir göngum á milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Enn er víða ófært og Öxnadalsheiðin lokuð vegna áreksturs. Innlent 2. apríl 2024 11:37
Öxnadalsheiði lokuð vegna áreksturs Öxnadalsheiði hefur verið lokuð vegna áreksturs. Innlent 2. apríl 2024 10:02
Hleypt á umferð um Öxnadalsheiði um klukkan níu Vegurinn um Öxnadalsheiði er enn lokaður en hleypt verður á umferð upp úr klukkan 09:00. Möguleiki er á að fylgdarakstur verði til að byrja með. Innlent 2. apríl 2024 08:44
Enn lokað um Öxnadalsheiði Enn er ófært á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars um Öxnadalsheiði fyrir norðan og um Þröskulda fyrir vestan. Innlent 2. apríl 2024 07:23
Él norðantil en bjartviðri suðvestanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt á landinu, éljum á norðanverðu landinu en bjartviðri suðvestantil. Veður 2. apríl 2024 07:11
Bæjarstjóri Akureyrar telur þörf á göngum Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir þurfa að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu. Innlent 1. apríl 2024 23:28
Öxnadalsheiðin áfram lokuð en Fjarðarheiðin opnaði í kvöld Ekki náðist að opna Öxnadalsheiði í dag en reiknað er með að hún verði opnuð í fyrramálið þegar veður skánar. Vegurinn um Fjarðarheiði opnaði í kvöld eftir að hafa verið lokaður í fjóra daga. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir von á hvelli í kvöld en það veður verði mun skárra á morgun. Innlent 1. apríl 2024 22:18
Þung umferð í gegnum Siglufjörð og umferðarstýring um Múlagöng Fjöldi fólks á leið suður af Norðurlandi hefur lagt leið sína fyrir Tröllaskaga, þar sem Öxnadalsheiði er lokuð. Innlent 1. apríl 2024 16:20
Öxnadalsheiði verður ekki opnuð í dag Vegurinn yfir Öxnadalsheiði verður ekki opnaður í dag. Innlent 1. apríl 2024 15:02
Íbúar á Seyðisfirði enn innilokaðir Fjarðarheiði hefur verið lokuð síðastliðna fjóra daga og íbúar Seyðisfjarðar því verið innilokuð frá því á fimmtudag. Innlent 1. apríl 2024 13:44
Óvíst hvort heiðin opni í dag og illfært um Tröllaskaga Hringvegurinn er lokaður um Öxnadalsheiði, sem og Möðrudal- og Mývatnsöræfi, og óvist hvort hægt verður að opna hann í dag. Vegir á Tröllaskaga eru opnir en illa færir, og því skiptir búnaður og reynsla ökumanna sem ætla að fara þar um öllu máli Innlent 1. apríl 2024 11:36
Snjóflóðahætta til fjalla víða um land Talsverð snjóflóðahætta er til fjalla víða um landið í dag. Mælst er til þess að fólk forðist það að ferðast um brattar brekkur til fjalla. Innlent 1. apríl 2024 11:23
Vegir lokaðir víða um landið Vegir eru lokaðir víða á landinu og færð ekki með besta móti sem er ekki gott fyrir alla þá ferðalanga sem þurfa að komast heim eftir páskahelgina. Veður 1. apríl 2024 09:21
Víða kalt í dag Áfram verður norðaustlæg átt á landinu, víða kaldi eða stinningskaldi með éljum í dag en léttskýjað suðvestantil. Veður 1. apríl 2024 07:47
Ófært víða um land: Bændur að „drukkna í mjólk“ sem hefur ekki verið sótt síðan fyrir helgi Mjólk hefur ekki verið sótt í Engihlíð í Vopnafirði frá því fyrir helgi vegna ófærðar. Bændurnir hafa boðið fólki að sækja mjólk til að þurfa ekki að hella henni. Verði mjólkin ekki sótt á morgun þarf að hella sex daga birgðum sem yrði mikið tjón. Ófært er víða um Austurland og gular viðvaranir um allt norðanvert landið. Innlent 31. mars 2024 18:26
Snjóbylur setur strik í stærstu skíðahelgi ársins Víða er ófært á Norður- og Austurlandi í dag og þurftu stjórnendur Hlíðarfjalls að loka á einni stærstu skíðahelgi ársins þegar snjóbylur skall á. Þá hafa björgunarsveitir þurft að aðstoða mikinn fjölda ferðalanga. Innlent 31. mars 2024 15:26